Fótbolti

„Ronaldo hefur alltaf verið á­trúnaðar­goðið mitt“

Dagur Lárusson skrifar
Rafael Leao í leik með AC Milan.
Rafael Leao í leik með AC Milan. Vísir/Getty

Rafael Leao, leikmaður AC Milan, segir að átrúnaðargoð hans hafi alltaf verið samlandi hans, Cristiano Ronaldo.

Báðir eru þeir frá Portúgal og hafa þeir spilað saman með landsliðinu í nokkur ár. Leao segir að hann hafi alltaf litið upp til hans og hann telur að hann geti náð jafn langt og hann.

„Átrúnaðargoðið mitt hefur alltaf verið Cristiano Ronaldo og ég trúi því að ég geti náð jafn langt og hann en ég mun samt sem áður aldrei verða eigingjarn leikmaður,“ sagði Leao.

„AC Milan hefur hjálpað mér að komast svona langt og það er sannkallaður heiður fyrir mig að spila fyrir þetta félag og ég vil verða fyrirliðinn einn daginn,“ endaði Rafael Leao að segja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×