Enski boltinn

Tomiyasu að fram­lengja við Arsenal

Dagur Lárusson skrifar
Takehiro Tomiyasu.
Takehiro Tomiyasu. Vísir/Getty

Japaninn Takehiro Tomiyasu, leikmaður Arsenal, er við það að framlengja samning sinn við félagið ef marka má nýjustu fréttir.

Tomiyasu hefur verið hjá félaginu frá sumrinu 2021 þegar hann var keyptur frá ítalska liðinu Bologna.

Ítalski fréttamaðurinn, Fabrizio Romano, greinir nú frá því að félagið og umboðsmenn leikmannsins séu í viðræðum um framlengingu á samningi hans. 

Tomiyasu hefur verið inn og út úr liðinu á þessu tímabili en hann er nú á leið í Asíubikarinn sem mun fara fram næstu vikurnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×