Enski boltinn

Mætast að nýju tuttugu árum eftir hetju­dáð Árna Gauts

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Árni Gautur Arason var leikmaður Manchester City í nokkra mánuði árið 2004.
Árni Gautur Arason var leikmaður Manchester City í nokkra mánuði árið 2004. Alex Livesey/Getty Images

Tuttugu ár eru síðan Manchester City vann Tottenham Hotspur 4-3 eftir að vera 3-0 undir í hálfleik. Um er að ræða einn frægasta leik FA Cup, ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu.

Við Íslendingar munum hvað helst eftir ótrúlegri tvöfaldri-markvörslu Árna Gauts Arasonar en hann stóð vaktina i marki Manchester City í leiknum. Í kvöld mætast liðin aftur í 4. umferð FA Cup.

Þægilegur fyrri hálfleikur hjá Tottenham

Þegar liðin gengu til búningsherbergja þann 4. febrúar árið 2004 var nákvæmlega ekkert sem benti til þess að Man City væri á leiðinni áfram né að frammistaða Ara Gauts yrði enn til umræðu tveimur áratugum síðar.

Líkt og í kvöld þá mættust liðin í 4. umferð en þar sem ekki fékkst skorið úr hvort liðið færi áfram þegar þau mættust í Manchester, lokatölur 1-1, þurftu þau að mætast að nýju á White Hart Lane þann 4. febrúar.

Þegar flautað var til hálfleiks var staðan 3-0 Tottenham í vil þökk sé mörkum frá Ledley King, Robbie Keane og Christian Ziege. Ekki skánaði það þegar hinn svo einkar takmarkaði Joey Barton nældi sér í sitt annað gula spjald og þar með rautt undir lok fyrri hálfleiks. Ofan á allt þetta hafði Nicolas Anelka, að flestra mati besti leikmaður Man City á þessum tíma, haltrað af velli í fyrri hálfleik.

Ótrúlegasta endurkoma síðari ára

Síðari hálfleikurinn var hins vegar eins fjarri þeim fyrri og hægt er að ímynda sér. Sylvain Distin , franski miðvörður Man City, minnkaði muninn eftir aðeins þriggja mínútna leik og fór ónotatilfinning um þau 30 þúsund sem höfðu gert sér ferð á White Hart Lane þetta kvöld.

Í stöðunni 3-1 fékk Tottenham aukaspyrnu sem Ziege tók en hann hafði skorað úr einni slíkri í fyrri hálfleik. Aftur smellti Ziege boltanum yfir vegginn og stefndi hann í bláhornið þegar vinstri hendi Árna Gauts Arasonar sló boltann í þverslánna.

Ekki nóg með það heldur náði Ari Gautur áttum og sýndi ótrúlega lipra takta þegar hann stökk á eftir frákastinu sem var við það að skoppa yfir marklínuna. Árni Gautur náði hins vegar að klófesta boltann og koma í veg fyrir að Tottenham kæmist 4-1 yfir.

Þarna virtust heimamenn missa alla trú. Hinn hollenski Paul Bosvelt minnkaði muninn svo enn frekar á 69. mínútu og Shaun Wright-Phillips, sem ógnaði sífellt með hraða sínum og krafti, jafnaði metin þegar tíu mínútur voru til leiksloka.

Það var svo í uppbótatíma sem Jonathan Paul Macken, sem ólst upp í rauða hluta Manchester-borgar, skoraði fjórða mark gestanna og tryggði Manchester City einn ótrúlegasta sigur í sögu félagsins. Mörkin og vörslu Árna Gauts má sjá í spilaranum hér að ofan.

Árni Gautur átti aðeins eftir að spila einn leik til viðbótar fyrir Man City áður en hann yfirgaf félagið sumarið 2004. Sá var gegn Manchester United í 5. umferð FA Cup, fór Man Utd með 4-2 sigur af hólmi í þeim leik og bikarævintýri City-manna því á enda.

Árni Gautur og ungur Cristiano Ronaldo í leik liðanna í 5. umferð FA Cup.Neal Simpson/Getty Images

Leikur kvöldsins er sýndur beint á Stöð 2 Sport 2. Útsending hefst klukkan 19.50 og leikurinn sjálfur tíu mínútum síðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×