Skólameistari Fjölbrautaskólans í Breiðholti segist ekkert skilja í sögusögnum sem fóru af stað í kjölfar lögregluaðgerðar við skólann í gær. Maður sem hótaði að gera árás í skólanum kom aldrei inn fyrir veggi skólans þennan dag.
Þá heyrum við í forsætisráðherra sem segir fjölda aðgerða í bígerð til að auka framboð á húsnæði fyrir Grindvíkinga. Þær miði að því að halda niðri verðbólgu. Ekki er búið að ákveða hvort förgunargjald í altjóni verði afnumið.
Við förum við yfir stöðuna í kjaraviðræðum, kíkjum á fjölmennt þorrablót í Kópavogi og heyrum í ósáttum eldri borgurum vegna þjónustuskerðingar.