Enski boltinn

New­cast­le á­fram

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Dan Burn fagnar marki sínu.
Dan Burn fagnar marki sínu. @EmiratesFACup

Newcastle United er komið áfram í ensku bikarkeppninni í knattspyrnu eftir 2-0 útisigur á Fulham.

Leikurinn var gríðarlega jafn og bæði lið jöfn í nærri allri tölfræði. Það eru hins vegar mörk sem telja í fótbolta og þau skoruðu gestirnir. 

Sean Longstaff kom Newastle yfir á 39. mínútu og Dan Burn tryggði sigurinn eftir klukkustund. Lokatölur 0-2 og Newcastle komið í 5. umferð ensku bikarkeppninnar, elstu bikarkeppni í heimi.


Tengdar fréttir

Lærisveinar Elokobi slógu Ipswich óvænt út

Maidstone, sem spilar í sjöttu efstu deild Englands, hélt óvæntu bikarævintýri sínu áfram með 2-1 sigri gegn Ipswich. Sigurinn fleytti Maidstone áfram í fjórðu umferð keppninnar, 32-liða úrslit. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×