Inter fer með forystuna til Spánar Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 20. febrúar 2024 21:55 Marko Arnautovic skoraði eina mark leiksins í kvöld. Emmanuele Ciancaglini/Ciancaphoto Studio/Getty Images Internazionale, toppliðið á Ítalíu, vann sterkan 1-0 sigur er liðið tók á móti Atletico Madrid, liðinu í fjórða sæti á Spáni, í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Inter hefur verið á mikilli siglingu heimafyrir og liðið er með níu stiga forystu í ítölsku deildinni, ásamt því að eiga leik til góða. Liðið fékk hins vegar alvöru próf í kvöld þegar Atlético Madrid mætti í heimsókn. Ítalska liðið stóðst þó prófið, þökk sé marki frá varamanninum Marko Arnautovic á 79. mínútu, en Austurríkismaðurinn kom inn á í hálfleik fyrir Marcus Thuram sem fór meiddur af velli. Inter fer því með 1-0 forystu í seinni leik liðanna sem fram fer á Spáni þann 13. mars næstkomandi. Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti