„Þessi plata er búin að vera svo lengi í bígerð og það að sjá fólk taka svona vel í hana og í kjölfarið upplifa tónleikana er ótrúleg tilfinning. Mig langar bara að segja takk kærlega allir fyrir að koma og takk allir frábæru gestirnir sem komu og spiluðu með mér,“ bætir Ízleifur við.
Var um að ræða útgáfutónleikar plötunnar Þetta er Ízleifur en uppselt var á viðburðinn og komust færri að en vildu.
„Upphitun var í höndum rapparans Big Joe og hins eina sanna Sturlu Atlas. Einnig stigu GDRN, Yung Nigo, ISSI, Birnir, Joey Christ og Daniil á svið með Ízleifi.
Beðið var eftir fyrstu plötu tónlistarmannsins með eftirvæntingu og hafa viðtökurnar verið eftir því,“ segir í fréttatilkynningu.
Ízleifur, sem heitir réttu nafni Ísleifur Eldur Illugason, vann að plötunni nú í rúm þrjú ár og hefur um hríð verið einn afkastamesti pródusent íslensku rappsenunnar.
„Setur platan fortíð íslensku hiphop senunnar í mikið samhengi samhliða því að leggja leiðarsteina í átt að framtíðinni.
Platan er gefin út af plötuútgáfufyrirtæki Priksins, Sticky. Viðburðurinn markar einnig ákveðin tímamót fyrir viðburðarhald undir hatti Priksins, utan þeirra rýmis.“
Það er svo ýmislegt á döfinni hjá Ízleifi:
„Nú tekur bara við er gigg törn, nóg um að vera og ég mun spila um allt land. Svo er það bara að hella sér aftur í stúdíoið og vinna í nýju stöffi.“
Hér má sjá nokkrar myndir frá kvöldinu:








