Lífið

Skilin

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Ariana Grande og fyrrverandi eiginmaðurinn eru perluvinir.
Ariana Grande og fyrrverandi eiginmaðurinn eru perluvinir. Emma McIntyre/Getty Images

Skilnaður Ariönu Grande og Dalton Gomez er genginn í gegn. Hjónin sóttu um skilnað síðasta haust eftir þriggja ára hjónaband.

Fram kemur í umfjöllun AP að dómstóll í Los Angeles hafi fallist á að veita hjónunum lögskilnað í október en sex mánuði tekur að lögfesta skilnaðinn. Þá kemur fram í gögnum vegna málsins að hjónin hafi ekki verið saman í meira en ár.

Þau höfðu gert með sér kaupmála og eiga engin börn saman. Skilnaðurinn gekk því vel og eru þau í raun perluvinir þrátt fyrir allt, að því er fram kemur í umfjöllun miðilsins.

Ariana hefur undanfarið ár verið í sambandi með tónlistarmanninum og leikaranum Ethan Slater. Sá skildi einmitt líka við sína eiginkonu, Lilly Jay, eftir að vera byrjaður með Ariönu Grande. Mikla athygli vakti þegar þau gáfu hvort öðru tíma og ráðrúm til að ganga frá sínum málum síðasta sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.