Minnkar kláða og ertingu í húð barnsins Cu2 3. apríl 2024 12:43 OatDerma línan er ilmefnalaus og sérstaklega þróuð fyrir ung börn með mjög þurra og viðkvæma húð. Hún inniheldur öfluga hafra- og olíublöndu sem minnkar kláða og ertingu í húð barnsins, Nýja OatDerma línan frá Childs Farm inniheldur einstaka hafrablöndu sem nærir og róar þurra og viðkvæma ungbarnahúð.
OatDerma línan er ilmefnalaus og sérstaklega þróuð fyrir ung börn með mjög þurra og viðkvæma húð. Línan inniheldur öfluga hafra- og olíublöndu sem minnkar kláða og ertingu í húð barnsins. Það tók sérfræðinga Childs Farm tvö ár og miklar rannsóknir að fullkomna formúlu OatDerma línunnar en hún er nú loksins komin á markað og aðeins fáanleg í apótekum. OatDerma samanstendur af þremur vörum, Baby Bubble Bath, Baby Wash og Baby Moisturiser. OatDerma samanstendur af þremur vörum: Baby Bubble Bath Ilmefnalaust búbblubað fyrir þau allra viðkvæmustu. Búið til úr 95% náttúrulegum hráefnum og er sérstaklega þróað til þess að róa og næra erta húð í baðinu. Mild blandan er stútfull af höfrum til að hreinsa og róa húð litla barnsins á ofur varlegan hátt til að hjálpa að koma í veg fyrir frekari þurrk og kláða. Að setja hafra í baðvatnið til að lina kláða er húsráð sem hefur verið notað í fjölda ára. Með þessu milda búbblubaði er hægt að fá sömu kláðastillandi áhrif á húð barnsins. Baby Wash Ilmefnalaus húðsápa fyrir þau allra viðkvæmustu. Búin til úr 95% náttúrulegum hráefnum. OatDerma er sérstaklega fyrir þau sem hafa þurra, erta og viðkvæma húð og inniheldur sápan fínmalað haframjöl og mýkjandi hafraolíu svo húðin haldi raka lengur. Sápa getur verið ertandi fyrir viðkvæma húð og haft þurrkandi áhrif á hana. Auk þess tapar húð ungra barna hraðar raka en hjá okkur fullorðna fólkinu og því getur heitt vatn og þurrkandi sápa haft mikil áhrif á viðkvæma barnahúð. Baby Moisturiser Ilmefnalaust kroppakrem fyrir þau allra viðkvæmustu. Búið til úr 97% náttúrulegum hráefnum. OatDerma er sérstaklega fyrir þau sem hafa þurra, erta og viðkvæma húð og er gerð með fullkominni blöndu af fínmöluðu haframjöli og hafraolíu. Þessi lykil innihaldsefni róa ertingu og kláða auk þess að gefa henni einstakan raka. Til þess að binda raka í húðinni eftir baðið er mikilvægt að bera á barnið gott rakagefandi krem og fyrir þau viðkvæmustu er best að kremið sé ilmefnalaust og róandi. OatDerma kremið kemur miklum raka inn í húðina og myndar svo létta filmu ofan á húðinni til þess að hindra að rakinn sleppi strax úr húðinni. Þannig helst húðin mjúk lengur og nær að nýta efnin í kreminu lengur. Náttúrulegir kraftar hafra beislaðir Í höfrum er að finna einstök næringarefni sem eru þekkt fyrir að hafa róandi og nærandi áhrif á þurra og viðkvæma húð. Beta-glúkan - Er náttúrulegur sykur sem bindur vökva í húðinni og gerir það að verkum að húðin fær meiri raka og heldur honum lengur. Avenantramíð - Er einstakt andoxunarefni sem er aðeins að finna í höfrum og er klínískt sannað að dragi úr ertingu og roða. Olíur og lípíð -Mikið magn þríglýseríða í höfrunum hjálpar til við að mynda verndandi lag ofan á húðinni sem heldur raka í henni lengur. Haframjölið sem notað er í OatDerma vörurnar er fengið með sjálfbærum hætti frá Finnlandi. Þau erfiðu vaxtarskilyrði sem eru í Finnlandi verða til þess að hafrarnir sem þar vaxa hafa hæsta stig af rakagefandi innihaldsefninu beta-glúkan sem er svo mikilvægt fyrir virkni varanna á húðina. Collodial haframjöl 6 þekktir kostir hafra fyrir húðina: • Virkar eins og ofurfæða fyrir húðina, mikil næring fyrir þurra og viðkvæma húð • Sefar ertingu: Hjálpar til við að róa húðina • Mild hreinsun: Hreinsar án þess að fjarlægja náttúrulegar olíur húðarinnar • Verndar húðina: Hjálpar til við að endurheimta varnarlag húðarinnar • Rakagefandi: Bindur raka í húðinni • pH jafnvægi: Viðheldur náttúrulegu pH-gildi húðarinnar Hafraolía Hafraolíu-ceramíð blandan í OatDerma er fullkomin fyrir viðkvæma og erta húð sem gjörn er á að fá exem. Ceramíðsamsetningin í hafraolíunni er einmitt sú plöntuolía sem líkust er þeim ceramíðum sem húð okkar hefur náttúrulega. Ceramíð eru stór hluti af náttúrulegri húðfitu í húð okkar en oft skortir þessi náttúrulegu húðceramíð í þurri, viðkvæmri og ertri exem húð. Hafraolía virkar sem mikill rakagjafi sem bæði bindur rakann í húðinni auk þess að loka hann inni með því að mynda verndarlag ofan á henni. OatDerma vörurnar fást aðeins í apótekum.
Börn og uppeldi Heilsa Mest lesið Falska söngkonan á leið í meðferð Lífið Eva segir lífið betra með Kára Stefáns Lífið Erfið lífsreynsla að þurfa að yfirgefa heimili sitt Lífið Gísli Pálmi í fótbolta með Barry Keoghan Lífið „Unun að troðið sé á manni þegar svona er“ Lífið Tíu myndarleg einbýlishús á höfuðborgarsvæðinu Lífið Sara Davíðs fann ástina í örmum flugstjóra Lífið Hélt niðri í sér hlátrinum yfir fölskum þjóðsöngnum Lífið Hildur Vala og Kjartan keyptu raðhús í Fossvogi Lífið Logi Bergmann var tekinn Lífið Fleiri fréttir Má augnskugginn þinn fara í kringum augun? Myndaveisla frá Kótilettunni þar sem Bylgjulestin var í beinni Spennandi ferðir til Taílands og Balí í haust Bylgjulestin á Kótelettunni Komdu í veg fyrir bitglaðar blóðsugur í sumar! Rómantísk bylgja í lestri með hækkandi sól Einstök upplifun í sveitasælu Óbrjótanleg lúxusglös í útileguna Myndaveisla frá Akureyri þar sem Bylgjulestin var í beinni Bylgjulestin verður í beinni frá Akureyri Nova klippir kaffiverðið Bylgjulestin var í beinni frá Humarhátíðinni Nýjar merkjavörur í hverri viku á Pop up markaði Optical Studio Nú set ég mig í fyrsta, annað og þriðja sætið Bylgjulestin á Humarhátíðinni um helgina Látum ekki lúsmýið skemma fyrir okkur gleðina - Bitin burt Sólgleraugu og umgjarðir á 40-70% afslætti - Pop up Optical Studio Hægðirnar segja til um heilsufarið – rétt fóður mikilvægt Hefði ekki trúað áhrifunum! Frábær stemming á Jósmessuhátíð á Eyrarbakka Farðu ljómandi í sumarið! Það má leika sér með matinn Bylgjulestin mætir á Jónsmessuhátíð á Eyrarbakka um helgina „Finnst ég geta afkastað mun meira yfir daginn“ Heimili myndast þegar fjölskyldan ver tíma þar saman Bylgjulestin í bongóblíðu á Þingvöllum Myndaveisla: Enn eitt vel heppnað Streetball mót X977 Allt sem þú þarft fyrir Midsummer hátíðina Bylgjulestin verður á Þingvöllum laugardaginn 15. júní Viltu bæta svefngæði þín? Sjá meira