Greint var frá því fyrr í kvöld að eflt hafi verið til rýmingar á tveimur svæðum á Seyðisfirði og einu svæði á Neskaupstað.
Í tilkynningu frá aðgerðastjórn á Austurlandi segir að ekki sé gert ráð fyrir að úrkomu sloti að ráði fyrr en á mánudag. Vegir á Seyðisfirði og í Neskaupstað á rýmdum svæðum séu þó opnir fyrir umferð. Vegna veðurs séu íbúar fjórðungsins þó hvattir til að vera ekki á ferðinni nema ef nauðsyn krefur. Mikilvægt sé að fylgjast vel með upplýsingum um færð og veður.

Aðgerðarstjórn fundar næst klukkan níu í fyrramálið og er nýrra upplýsinga að vænta í kjölfarið. Staðan er hinsvegar vöktuð allan sólarhinginn af starfsmönnum Veðurstofu og snjóflóðaeftirlitsmönnum hennar.
Loks segir að ekki sé talin hætta utan rýmdra svæða.
