Fréttir af ostakúluátinu bárust fyrst nokkrum vikum fyrir gjörninginn þegar plaköt tóku að birtast í nágrenninu um atburðinn.

„Fylgstu með mér borða heila krukku af ostakúlum“ stóð á plakatinu með mynd af lambhúshettuklæddum manninum haldandi á krukku af snakkinu.
Ein risakrukka (e. jumbo jar) af ostakúlum telur um 1.100 kúlur og er 35 únsur að þyngd, eða rétt um 0,99 kíló.
Gjörningurinn dró síðan fjölda fólks að Union Square-garði þar sem áhorfendur hrópuðu „ostakúlumaður“ og „éttu þessar ostakúlur“ til að hvetja manninn áfram. Sjónarvottar sögðust hafa heyrt í fagnaðarópunum í tveggja húsaröða fjarlægð.
Kláraði verkefnið á hálftíma og fór heim að æla
Ostakúlumaðurinn borðaði ostakúlurnar á hálftíma og gaf stuðningsmönnum eiginhandaráritanir. Í kjölfarið hljóp hann um torgið með fána með mynd af sér sjálfum, tók í hendur fólks og sagði ítrekað að hann þyrfti að „fara heim að æla“.
New York is the best city man a whole crowd showed up to watch a guy eat a full container of cheese balls at 3 PM pic.twitter.com/FMOG7xY6gA
— C (@SmittyNYK) April 27, 2024
„Ég ákvað að gera þetta af því mér fannst New York-borg vanta eitthvað svona lagað,“ sagði hinn 23 ára nafnlausi Ostakúlumaður í samtali við New York Post.
„Ostakúlur eru fyndnar og að borða heila krukku er erfitt verkefni, en ekki ómögulegt.“
„Á tímapunkti leið mér eins og ég þyrfti örugglega að æla en fólk hrópaði „haltu því niðri“ svo hátt að ég gerði það bara,“ sagði maðurinn sem er nýútskrifaður úr NYU í samtali við ABC.
Hann segist þó vilja vera meira en bara átvagl. „Ég hef verið að reyna að hjálpa fólki. Ég þríf borgina, tek upp rusl,“ sagði hann.