Í tilkynningu um fundinn segir að vegavinna í nálægð við þunga og hraða umferð geti verið stórhættuleg þeim sem við hana vinna. Því séu vinnusvæði ávallt vel merkt og hraði í gegnum þau lækkaður. Það beri þó ekki alltaf árangur og hraði í gegnum vinnusvæði sé oft mikill. Það auki mjög hættu fyrir starfsfólk og vegfarendur.
Morgunfundurinn fer fram í húsakynnum Vegagerðarinnar, Suðurhrauni 3 í Garðabæ, og stendur frá klukkan 9:00 til 10:15. Fundurinn er opinn öllum og heitt verður á könnunni. Fundurinn er einnig í beinu streymi sem hægt er að horfa á hér að neðan.
Dagskrá
- Manstu ekki eftir mér? Sævar Helgi Lárusson, öryggisstjóri Vegagerðarinnar
- Óöryggi á vegum úti. Þröstur Reynisson, verkstjóri á þjónustustöð Vegagerðarinnar í Borgarnesi
- Hraðakstur á vinnusvæðum er vandamál. Ágúst Jakob Ólafsson/Einar Hrafn Hjálmarsson, verkstjóri hjá ÍAV. Akstur um vinnusvæði – Fræðslumynd. Gunnar Geir Gunnarsson, deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar Samgöngustofu
- Fundarstjóri: G. Pétur Matthíasson
Fundurinn er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar og Samgöngustofu. Í tilkynningu segir að fjöldi verktaka muni taka þátt í vitundarátakinu í sumar með því að setja upp skilti til að minna fólk á að aka varlega, enda séu mæður, feður, ömmur, afar, frændur og frænkur að störfum. Þannig verður reynt að auka vitund vegfarenda um öryggi starfsfólks við vegavinnu.