Lögregla rannsakar andlát í Bolungarvík Ólafur Björn Sverrisson og Jón Þór Stefánsson skrifa 27. maí 2024 23:00 Íbúar í Bolungarvík sem fréttastofa hefur rætt við bíða þess að lögregla sendi frá sér tilkynningu um hvað gekk á í einbýlishúsi í bænum í dag. vísir/arnar Lögreglan á Vestfjörðum kallaði í kvöld eftir aðstoð tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur lögregla til rannsóknar andlát í Bolungarvík. Lögreglustjóri vill lítið sem ekkert tjá sig um málið. Samkvæmt heimildum fréttastofu rannsakar lögregla vettvang í einbýlishúsi á einni hæð við Hlíðarveg í Bolungarvík þar sem par hefur búið. Lögreglubílar með blikkandi ljós og sjúkrabíll renndu í hlað á sjöunda tímanum. Helgi Jensson, lögreglustjóri á Ísafirði staðfestir að mál sé til rannsóknar. Mbl.is greindi fyrst frá aðkomu tæknideildarinnar. Helgi lögreglustjóri vill hins vegar lítið sem ekkert tjá sig um málið. Það virðist til marks um alvarleika málsins að ákveðið var að óska eftir tæknideild lögreglu og það með hraði. Þyrla Landhelgisgæslunnar var ræst út. Samkvæmt heimildum fréttastofu sáust lögreglumenn fara inn í húsið með því að fjarlægja spónaplötu sem sett var fyrir glugga í vetur þegar rúða sprakk í óveðri. „Þeir eru að aðstoða okkur í máli sem við erum að rannsaka. Það er nýkomið upp og ég get ekki sagt meira en það,“ segir Helgi lögreglustjóri spurður út í aðkomu tæknideildarinnar. Er um sakamál að ræða? „Ég vil ekki segja neitt meira á þessu stigi. Þetta er bara á algjöru frumstigi, mínir menn eru bara að vinna í því, ég gef þeim frið til að skoða aðeins áður en við gefum eitthvað upp.“ Er um viðkvæmt mál að ræða? „No comment.“ Að sögn Ásgeirs Erlendssonar upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar barst þeim tilkynning um málið um klukkan átta. Tæknideild lögreglunnar var flogið með þyrlunni í framhaldinu. Ásgeir gat sömuleiðis ekki veitt neinar frekari upplýsingar um málið þegar eftir því var leitað. „Okkar hlutverk var bara að fljúga vestur,“ segir Ásgeir. Veistu meira um málið? Fréttastofa tekur við öllum ábendingum og myndum á netfangið ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið. Lögreglumál Bolungarvík Mest lesið Full ástæða til að vara foreldra við Innlent Skökk gangstéttarhella eyðilagði líf Ragnheiðar Innlent Merki Coolbet fjarlægt eftir símtal fréttamanns Innlent Með veiðistangir en neituðu því að hafa verið að veiða Innlent Biðst velvirðingar á myndbirtingunni Innlent Útskýrir ummælin um barnlausar kattarkonur Erlent Skipuleggjendur Druslugöngunnar þurftu fljótlega að loka fyrir innsendingar Innlent Málið óheppilegt og mjög klaufalegt Innlent FBI dregur forstjórann í land og staðfestir að Trump hafi orðið fyrir byssukúlu Erlent Bálhýsi á skógræktarsvæði á Borg í Grímsnesi Innlent Fleiri fréttir Búast við jökulhlaupi úr Mýrdalsjökul Fullkomið gagnsæi mikilvægt, greiði fyrir greiða ekki við hæfi Bílakaup verðandi forseta og Druslugangan Lögreglan búin að finna manninn sem beraði sig Skipuleggjendur Druslugöngunnar þurftu fljótlega að loka fyrir innsendingar Skökk gangstéttarhella eyðilagði líf Ragnheiðar Merki Coolbet fjarlægt eftir símtal fréttamanns Bálhýsi á skógræktarsvæði á Borg í Grímsnesi Biðst velvirðingar á myndbirtingunni Með veiðistangir en neituðu því að hafa verið að veiða Full ástæða til að vara foreldra við Málið óheppilegt og mjög klaufalegt Fíkniefni á samfélagsmiðlum og bílakaup verðandi forseta Ekki verið ætlun þeirra að gera bílakaupin opinber Forstjóri Brimborgar á athyglisverðum gestalista Höllu Kæra Byko vegna límmiða úr sögunni Ármúlinn verði vel nothæfur leikskóli eftir tvær vikur Hnífamaðurinn í Lundi áfram bak við lás og slá „Hann meiddi mig ekki mikið“ Umboðsmaður barna krefst svara um nýtt námsmat Sala á fíkniefnum fari fram fyrir opnum tjöldum Ferðamennirnir lausir úr haldi eftir líkamsárás Sala fíkniefna fyrir opnum tjöldum og stemmning á Húsavík Ný líkön sýna umfang hraunsins Allt í háaloft þegar faðirinn sneri til baka úr veikindaleyfi Óbreyttir bændur í Mýrdalnum hafi ekki efni á malbiki Ragnar Þór kennir Pawel eitt og annað í kennslufræðum Segir málið hið sérkennilegasta og krefst svara Boðar laugardagsbongó Verstu skemmdarverk í sögu Lystigarðsins Sjá meira
Samkvæmt heimildum fréttastofu rannsakar lögregla vettvang í einbýlishúsi á einni hæð við Hlíðarveg í Bolungarvík þar sem par hefur búið. Lögreglubílar með blikkandi ljós og sjúkrabíll renndu í hlað á sjöunda tímanum. Helgi Jensson, lögreglustjóri á Ísafirði staðfestir að mál sé til rannsóknar. Mbl.is greindi fyrst frá aðkomu tæknideildarinnar. Helgi lögreglustjóri vill hins vegar lítið sem ekkert tjá sig um málið. Það virðist til marks um alvarleika málsins að ákveðið var að óska eftir tæknideild lögreglu og það með hraði. Þyrla Landhelgisgæslunnar var ræst út. Samkvæmt heimildum fréttastofu sáust lögreglumenn fara inn í húsið með því að fjarlægja spónaplötu sem sett var fyrir glugga í vetur þegar rúða sprakk í óveðri. „Þeir eru að aðstoða okkur í máli sem við erum að rannsaka. Það er nýkomið upp og ég get ekki sagt meira en það,“ segir Helgi lögreglustjóri spurður út í aðkomu tæknideildarinnar. Er um sakamál að ræða? „Ég vil ekki segja neitt meira á þessu stigi. Þetta er bara á algjöru frumstigi, mínir menn eru bara að vinna í því, ég gef þeim frið til að skoða aðeins áður en við gefum eitthvað upp.“ Er um viðkvæmt mál að ræða? „No comment.“ Að sögn Ásgeirs Erlendssonar upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar barst þeim tilkynning um málið um klukkan átta. Tæknideild lögreglunnar var flogið með þyrlunni í framhaldinu. Ásgeir gat sömuleiðis ekki veitt neinar frekari upplýsingar um málið þegar eftir því var leitað. „Okkar hlutverk var bara að fljúga vestur,“ segir Ásgeir. Veistu meira um málið? Fréttastofa tekur við öllum ábendingum og myndum á netfangið ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.
Veistu meira um málið? Fréttastofa tekur við öllum ábendingum og myndum á netfangið ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.
Lögreglumál Bolungarvík Mest lesið Full ástæða til að vara foreldra við Innlent Skökk gangstéttarhella eyðilagði líf Ragnheiðar Innlent Merki Coolbet fjarlægt eftir símtal fréttamanns Innlent Með veiðistangir en neituðu því að hafa verið að veiða Innlent Biðst velvirðingar á myndbirtingunni Innlent Útskýrir ummælin um barnlausar kattarkonur Erlent Skipuleggjendur Druslugöngunnar þurftu fljótlega að loka fyrir innsendingar Innlent Málið óheppilegt og mjög klaufalegt Innlent FBI dregur forstjórann í land og staðfestir að Trump hafi orðið fyrir byssukúlu Erlent Bálhýsi á skógræktarsvæði á Borg í Grímsnesi Innlent Fleiri fréttir Búast við jökulhlaupi úr Mýrdalsjökul Fullkomið gagnsæi mikilvægt, greiði fyrir greiða ekki við hæfi Bílakaup verðandi forseta og Druslugangan Lögreglan búin að finna manninn sem beraði sig Skipuleggjendur Druslugöngunnar þurftu fljótlega að loka fyrir innsendingar Skökk gangstéttarhella eyðilagði líf Ragnheiðar Merki Coolbet fjarlægt eftir símtal fréttamanns Bálhýsi á skógræktarsvæði á Borg í Grímsnesi Biðst velvirðingar á myndbirtingunni Með veiðistangir en neituðu því að hafa verið að veiða Full ástæða til að vara foreldra við Málið óheppilegt og mjög klaufalegt Fíkniefni á samfélagsmiðlum og bílakaup verðandi forseta Ekki verið ætlun þeirra að gera bílakaupin opinber Forstjóri Brimborgar á athyglisverðum gestalista Höllu Kæra Byko vegna límmiða úr sögunni Ármúlinn verði vel nothæfur leikskóli eftir tvær vikur Hnífamaðurinn í Lundi áfram bak við lás og slá „Hann meiddi mig ekki mikið“ Umboðsmaður barna krefst svara um nýtt námsmat Sala á fíkniefnum fari fram fyrir opnum tjöldum Ferðamennirnir lausir úr haldi eftir líkamsárás Sala fíkniefna fyrir opnum tjöldum og stemmning á Húsavík Ný líkön sýna umfang hraunsins Allt í háaloft þegar faðirinn sneri til baka úr veikindaleyfi Óbreyttir bændur í Mýrdalnum hafi ekki efni á malbiki Ragnar Þór kennir Pawel eitt og annað í kennslufræðum Segir málið hið sérkennilegasta og krefst svara Boðar laugardagsbongó Verstu skemmdarverk í sögu Lystigarðsins Sjá meira