Pula í Króatíu er paradís heim að sækja Aventura 3. júní 2024 11:35 Pula í Króatía er nýr og spennandi kostur fyrir Íslendinga. Nýjasti áfangastaður Íslendinga er paradísin Pula í Króatíu. Aventura mun bjóða upp á beint flug þangað í sumar. „
Pula í Króatíu sameinar það besta í fríinu,“ segir Andri Már Ingólfsson, forstjóri Aventura. „Þar má nefna einstaka náttúrufegurð Adríahafsins og þúsunda ára gamla menningu sem er alls staðar sýnileg í mannlífi, byggingum og matargerð.“ Króatía er mjög spennandi kostur fyrir ferðamenn og hefur landið notið sívaxandi vinsælda undanfarin ár að sögn Andra. „Enda er svo margt sem er heillandi við land og þjóð, til dæmis að upplifa þessa fallegu náttúru og endalausa möguleika í fríinu. Hér er ótrúlegt úrval af spennandi hlutum til að njóta í fríinu, hvort sem þú vilt sigla til Feneyja á Ítalíu, heimsækja þjóðgarða, kíkja í hringleikahús frá dögum Rómverja, sigla til Hvar sem er ein fallegasta eyjan í Adríahafinu, rölta um aldagamlar borgir eða fara í spennandi matar- og vínsmökkun en maturinn hér er víðfrægur. Farþegum Aventura býðst auk þess gott úrval af spennandi skoðunarferðum.“ Boðið er upp á úrval frábærra gististaða við allra hæfi, með frábærri aðstöðu, stórum görðum, sundlaugum, rennibrautagörðum, tennisvöllum og ýmis konar íþróttaaðstöðu. Einnig er hægt að velja lúxus hótel við ströndina ef viðskiptavinir óska eftir því. „Í Króatíu er mikið lagt upp úr íþróttaiðkun og allskonar tómstundaiðkun. Þar gefast því ótal tækifæri til að fara í styttri og lengri hjólaferðir, skreppa í siglingu, prófa köfun eða skella sér í báts- og kajakferðir.“ Flogið er í beinu leiguflugi alla miðvikudaga frá 29. maí - 27. júní með flugfélaginu Play. Íslenskir fararstjórar í Króatíu í sumar eru þau Trausti Hafsteinsson og Rún Kormáksdóttir sem taka vel á móti sólþyrstum Íslendingum og verða þeim innanhandar allan tímann í fríinu. Fyrsta flugið fór þann 29. maí og var það full vél. Nú eru 180 farþegar Aventura að njóta lífsins í Pula og Porec. Aventura er nú að bjóða síðustu sætin þann 12. júní og síðasta flugið er þann 19. júní. Kynntu þér málið á vef Aventura.
Ferðalög Mest lesið Íslendingur áberandi í bandarískri raunveruleikaseríu Lífið Gústi B fann ástina hjá Hafdísi Sól Lífið Enn að ná sér niður eftir að hafa hitt Miuccia Prada Tíska og hönnun Ragnheiður Gröndal er söluhæsti listamaður á tónlist.is frá upphafi Lífið Frændsystkini á leið í lækninn: „Sá á fjölskyldugrúppunni að hann hafði líka komist inn“ Lífið Damon Younger og Ásdís hætt saman: „Það þarf enginn að efast um hvort ég elski hana“ Lífið Kenndi Kelly Clarkson að bera fram Laufey og Björk Tónlist Undurfagurt og heillandi einbýli í Mosfellsbæ Lífið Gummi Emil grípur til sinna ráða eftir fangelsisdóm Lífið Lækkuðu hitastigið fyrir leðurklædda kvikmyndaáhugamenn Lífið Fleiri fréttir Hefði ekki trúað áhrifunum! Frábær stemming á Jósmessuhátíð á Eyrarbakka Farðu ljómandi í sumarið! Það má leika sér með matinn Bylgjulestin mætir á Jónsmessuhátíð á Eyrarbakka um helgina „Finnst ég geta afkastað mun meira yfir daginn“ Heimili myndast þegar fjölskyldan ver tíma þar saman Bylgjulestin í bongóblíðu á Þingvöllum Myndaveisla: Enn eitt vel heppnað Streetball mót X977 Allt sem þú þarft fyrir Midsummer hátíðina Bylgjulestin verður á Þingvöllum laugardaginn 15. júní Viltu bæta svefngæði þín? „Í fyrrakvöld bjargaði Tesla bifreið lífi mínu“ „Að skora í gegnum keðjunet er bara gæsahúðar móment“ Vandamálið við fætur, þeir eru í laginu eins og fætur Mosfellsdalur tók vel á móti Bylgjulestinni LED ljósameðferðir: Nýjasta trendið í húðumhirðu „Viltu passa mig?“ Sniglar höfða til kærleikans í umferðinni Fjörið með Bylgjulestinni heldur áfram í Mosfellsbæ Gerðu upplifunina að EM í fótbolta skemmtilegri með Match Attax Á leið á landsleik í London í boði Netgíró Sígild hönnun frá Rosti verður 70 ára Frábær stemming hjá Bylgjulestinni í Eyjum um helgina Verum vakandi í umferðinni í sumar Pula í Króatíu er paradís heim að sækja Um tvöhundruð bækur komnar út á árinu - sumarbókavikan hefst í dag Bylgjulestin af stað - fyrsta stopp Vestmannaeyjar „Tek bara þátt til að vinna“ - Marthe sigraði uppskriftakeppni Bylgjunnar og Gott í matinn Barnið þitt verður forseti Íslands í persónusniðinni barnabók Verndum andlitið alla daga með NIVEA sólarvörn Sjá meira