Spacey á barmi gjaldþrots Lovísa Arnardóttir skrifar 11. júní 2024 21:13 Kevin Spacey var sýknaður i bæði dómstóli í Bretlandi og Bandaríkjunum af ásökunum um kynferðisbrot. Vísir/EPA Leikarinn Kevin Spacey er á barmi gjaldþrots og hefur selt heimili sitt í Baltimore svo hann geti borgað reikninga. Leikarinn galopnaði sig í viðtali við breska sjónvarpsmanninn Piers Morgan sem sýnt var í kvöld á Talk TV.
Þar ræddi hann ásakanir gegn sér um kynferðislega áreitni og hvernig líf hans hefur breyst frá því að fyrstu ásakanir komu fram árið 2017. Viðtalið er um 90 mínútur. Fram kemur í erlendum miðlum að þegar Morgan spurði um núverandi heimili Spacey hafi hann komist í uppnám og greint frá því að heimili hans í Baltimore hafi verið selt á uppboði. @dailymail Kevin Spacey BROKE DOWN in an interview with Piers Morgan as he revealed he’s lost his home and has ‘no’ money. 🎥 YouTube / Piers Morgan Uncensored #kevinspacey #news #houseofcards #celebritynews #interview #breakdown ♬ i was only temporary - my head is empty „Ég verð því að fara aftur til Baltimore og setja eignir mínar í geymslu. Svo svarið við þessari spurningu er að ég er ekki alveg viss um það hvar ég ætla að eiga heima.“ Hann sagðist hafa búið í Baltimore allt frá því að tökur á þáttunum House of Cards hófust þar árið 2012 og í þessu sama húsi síðustu átta árin. Skuldar mikinn lögfræðikostnað Spurður hvort hann væri á barmi gjaldþrots svaraði Spacey því að hann hefði nokkrum sinnum verið nálægt því að lýsa sig gjaldþrota en hefði náð að komast hjá því naumlega. Hann ætti lítinn pening í dag og skuldaði enn mikið í lögfræðikostnað. Samanlagt skuldi hann enn einhverjar milljónir. Morgan spurði hann að lokum hver hans næstu skref yrðu og sagðist Spacey þá ætla sér „aftur upp á hestinn“.
Hollywood Mál Kevin Spacey Tengdar fréttir Stjörnurnar vilja Spacey úr sjö ára útlegð Hollywood stjörnur vilja að leikarinn Kevin Spacey fái að snúa aftur í bransann og leika að nýju eftir sjö ára útlegð, eins og því er lýst. Leikarinn hefur ekki leikið síðan árið 2017 þegar ungir menn í Bretlandi og í Bandaríkjunum stigu fram og hann var ákærður fyrir kynferðisbrot gegn þeim á barnsaldri en síðar sýknaður. 16. maí 2024 10:53 „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Hollywood-leikarinn Kevin Spacey hjólar í bresku sjónvarpsstöðina Channel 4 sem framleiðir um þessar myndir heimildarmynd um ásakanir á hendur honum um kynferðisofbeldi. 2. maí 2024 23:20 Kevin Spacey létt eftir sýknudóm Hollywood leikarinn Kevin Spacey var í dag sýknaður fyrir dómi í Lundúnum af öllum ákærum um kynferðisbrot gegn fjórum karlmönnum. 26. júlí 2023 20:30 Spacey grét er hann var sýknaður Breskir kviðdómendur hafa sýknað bandaríska leikarann Kevin Spacey af tólf ákærum um kynferðisbrot gegn fjórum breskum mönnum. Það var gert í dag eftir þriggja vikna réttarhöld í Lundúnum. 26. júlí 2023 14:20 „Ég er mikill daðrari“ Kevin Spacey, hinn þekkti bandaríski leikari, segist miður sín yfir því að maður hafi sakað sig um nauðgun. Spacey segist hafa liðið eins og hann hafi verið stunginn í bakið þegar hann heyrði fyrst af ásökunum. 13. júlí 2023 11:19 Mest lesið Landaði hlutverki í íslensku Hallmark-myndinni á hálftíma Bíó og sjónvarp Að velja rangan maka: „Við gerum oft svo lítið úr ástarmálunum“ Áskorun Lively í hart: „Þú veist að við getum grafið hvern sem er“ Bíó og sjónvarp Garðar málari og kvæntur yngstu ömmu landsins Lífið Frægir fjölguðu sér árið 2024 Lífið Krakkatían: Jólasveinar, stjörnustríð og þjóðsögur Lífið Fékk Sigurbjörn Árna til að lýsa óhappi í vinnunni Lífið Blaðasnápurinn Stefán Einar fórnar kampavínskóngstitlinum Lífið Fréttatía vikunnar: Lýðheilsa, ísbúð og álag Lífið Innlit á æfingu Jólagesta: „Allt þarf að taka endi“ Tónlist Fleiri fréttir Krakkatían: Jólasveinar, stjörnustríð og þjóðsögur Blaðasnápurinn Stefán Einar fórnar kampavínskóngstitlinum Hlaupársdagurinn þegar Ölfusá flæddi inn í Selfossbæ Fréttatía vikunnar: Lýðheilsa, ísbúð og álag Frægir fjölguðu sér árið 2024 Forsetinn og viðskiptavinir fengu forsmekk að Vigdísi Fékk bónorð í jólagjöf á tónleikum Paul McCartney Fékk Sigurbjörn Árna til að lýsa óhappi í vinnunni „Það besta, versta og skrýtnasta á árinu“ Eitt fallegasta hús landsins sem Duna Laxness ólst upp í Garðar málari og kvæntur yngstu ömmu landsins Barst með snjóflóði út í sjó og fékk hjartaáfall á tíu metra dýpi Hefðum við átt að sjá framboð Höllu Hrundar fyrir strax í febrúar? Ringo tróð upp á tónleikum Paul McCartney Safnaði fyrir björgunarsveitinni sem kom ömmu úr snjóflóði Fjölgar listaverkum eftir konur á Bessastöðum Helgi og Rakel með listgallerí í miðri íbúð þeirra Sonur Gunnhildar og Erin kominn með nafn Prinsinn kom á undan Kónginum Tilkynningin sem kom af stað óvæntri atburðarás Kári og Eva eru hjón Hafdís ætlar ekki að svara spurningaflóðinu Einfaldar leiðir fyrir andlega vellíðan um hátíðirnar „Þetta byrjaði allt þegar ég var á lausu“ Orði gagnrýni eins og þeir vilji að makinn orði hana Innlit í nýju Airbus vélina sem er nýlent á landinu Dótturdóttir Bjarna Ben komin með nafn „Hvert heldurðu að álagið sé orðið á börnin sjálf?“ Snorri þurfti að veiða sögurnar upp úr Gumma Google Tískudrottningin biðst afsökunar á eineltinu Sjá meira
Stjörnurnar vilja Spacey úr sjö ára útlegð Hollywood stjörnur vilja að leikarinn Kevin Spacey fái að snúa aftur í bransann og leika að nýju eftir sjö ára útlegð, eins og því er lýst. Leikarinn hefur ekki leikið síðan árið 2017 þegar ungir menn í Bretlandi og í Bandaríkjunum stigu fram og hann var ákærður fyrir kynferðisbrot gegn þeim á barnsaldri en síðar sýknaður. 16. maí 2024 10:53
„Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Hollywood-leikarinn Kevin Spacey hjólar í bresku sjónvarpsstöðina Channel 4 sem framleiðir um þessar myndir heimildarmynd um ásakanir á hendur honum um kynferðisofbeldi. 2. maí 2024 23:20
Kevin Spacey létt eftir sýknudóm Hollywood leikarinn Kevin Spacey var í dag sýknaður fyrir dómi í Lundúnum af öllum ákærum um kynferðisbrot gegn fjórum karlmönnum. 26. júlí 2023 20:30
Spacey grét er hann var sýknaður Breskir kviðdómendur hafa sýknað bandaríska leikarann Kevin Spacey af tólf ákærum um kynferðisbrot gegn fjórum breskum mönnum. Það var gert í dag eftir þriggja vikna réttarhöld í Lundúnum. 26. júlí 2023 14:20
„Ég er mikill daðrari“ Kevin Spacey, hinn þekkti bandaríski leikari, segist miður sín yfir því að maður hafi sakað sig um nauðgun. Spacey segist hafa liðið eins og hann hafi verið stunginn í bakið þegar hann heyrði fyrst af ásökunum. 13. júlí 2023 11:19