Loris Karius, sem varði mark Liverpool á árunum 2016-18, gekk að eiga ítölsku íþróttafréttakonuna Dilettu Leotta á ítölsku eyjunni Vulcano um helgina.
Rúrik var meðal gesta í brúðkaupinu og birti myndir úr því á Instagram. „Ástinni fagnað! Takk fyrir að hafa mig í fallega brúðkaupinu ykkar Loris og Diletta,“ skrifaði Rúrik við myndirnar.
Karius og Leotta hafa verið saman síðan 2022. Þau eiga eitt barn saman, dótturina Ariu sem fæddist í ágúst í fyrra.
Karius yfirgefur Newcastle United þegar samningur hans við félagið rennur út um mánaðarmótin. Hann gekk í raðir liðsins fyrir tveimur árum en lék aðeins tvo leiki fyrir það.