Neytendur

Verð­­skrá Luft­hansa hækkar vegna nýs um­­hverfis­­gjalds

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Á næsta ári mun Lufthansa leggja sérstakt umhverfisgjald á alla selda flugmiða innan Evrópu.
Á næsta ári mun Lufthansa leggja sérstakt umhverfisgjald á alla selda flugmiða innan Evrópu. EPA/Armando babani

Þýska flugsamsteypan Lufthansa, eitt stærsta flugfélag heims, hefur ákveðið að leggja sérstakt umhverfisgjald á selda flugmiða félagsins innan Evrópu. Þetta er gert til að mæta auknum kostnaði sem kemur til vegna umhverfismarkmiða Evrópusambandsins.

Þetta kemur fram í frétt þýska miðilsins Tagesschau. Þar segir að nýja umhverfisgjaldið verði lagt á öll flug frá og með 1. janúar 2025. Gjaldið verður lagt á öll flug á vegum Lufthansa-samsteypunnar sem fljúga frá öllum 27 löndum Evrópusambandsins, ásamt Bretlandi, Noregi og Sviss.

Umhverfisgjaldið verður mishátt, eftir því hve langt flugið er. Kostnaður verður frá einni evru allt að sjötíu og tveimur evrum. Umhverfisgjaldið verður tilgreint sérstaklega í kostnaðarsundurliðun þegar verið er að bóka flugið, að undanskildum flugum frá Eurowings. Þar verður aðeins heildarverð flugmiðans til sýnis, eins og verið hefur.

Eurowings er í eigu Lufthansa.

Mæta kostnaði frá Evrópusambandinu

Fram kemur að ætlunin með gjaldinu sé að mæta kostnaði sem kemur til meðal annars vegna reglugerða Evrópusambandsins sem lúta að umhverfismálum. Þar er um að ræða kröfur um að flugfélögin fari í auknum mæli að nota umhverfisvænna eldsneyti eins og kerosene. Fjárfestingar sem Lufthansa þurfi að ráðast í vegna þessa hljóði upp á marga millarja evra, og ekkert annað sé í stöðunni en að hækka verðin.

Þá stendur einnig til að breyta viðskiptakerfi Evrópu með losunarheimildir, en flugfélög hafa fram að þessu fengið þær að mestu ókeypis. Ætlun Evrópusambandsins er að fríum losunarheimildum til flugélaga fækki verulega á næstu árum.

Í tilkynningu Lufthansa kemur fram að fram að þessu hafi félagið haft valmöguleika fyrir viðskiptavini að greiða aukagjald til kolefnisjöfnunar. Aðeins hafi um fjögur prósent viðskiptavinanna kosið að greiða það gjald, en það muni þó áfram standa til boða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×