Umfjöllunin er byggð á rannsóknarvinnu Philippe Auclair og Andy Brown fyrir Josimar.
Ensku úrvalsdeildarfélögin settu bann í fyrra við veðmálaauglýsingum, sem tekur gildi tímabilið 2026-27.
Fjöldi félaga ber slíkar auglýsingar í dag
Sjö félög ensku úrvalsdeildarinnar báru merki veðmálasíðna framan á treyju sinni á síðasta tímabili. Engin af topp sex liðunum, auglýsingasamningar þar hljóða upp á 25-40 milljónir punda en hjá neðantöldum liðum er það á bilinu 2-10 milljónir.
- AFC Bournemouth (Dafabet)
- Aston Villa (BK8)
- Brentford (Hollywoodbets)
- Burnley (W88)
- Everton (Stake.com)
- Fulham (Sbotop)
- West Ham United (Betway)
Crystal Palace og Wolverhampton Wanderers bættust nýlega í hópinn. Félögin tilkynntu styrktaraðilana með eins dags millibili fyrir tæpum mánuði síðan og sögðu bæði um metfé að ræða.
Sami aðili virðist eiga síðurnar
Styrktaraðilarnir ganga undir sitt hvorum nöfnunum NET88 (Crystal Palace) og DEBET (Wolverhampton W.) en virðast vera í eigu sama aðila og eru skráð undir sama móðurfélagi á Möltu.
Þar að auki eru vefsíður NET88 og DEBET keimlíkar, stuðlar þeirra þeir sömu og veðmálaframboðið nákvæmlega eins. Báðar síður sóttu um starfsleyfi í Bretlandi þann 13. mars síðastliðinn.
Vefsíðan í vinnslu
NET88 auglýsir sig sem stærstu veðmálasíðu Víetnam, en veðmál eru að öllu leiti ólögleg þar í landi. Allt efni á heimasíðu og samfélagsmiðlum fyrirtækisins er á víetnömsku. Þegar farið er á breska lénið „NET-88.co.uk“ stendur að vefsíðan sé í vinnslu og fari í loftið fljótlega.

Stofnandinn látin TikTok stjarna
Á heimasíðu NET88 má finna upplýsingar um stofnandann, sem kölluð er Minh Châu en hét í raun Bich Tuyèn og var víetnömsk TikTok stjarna sem lést í febrúar 2023.
Þar stendur einnig að NET88 hafi verið stofnað árið 2020 en engar sannanir finnast fyrir því og félagið hefur hvergi eldra starfsleyfi en síðan síðla árs 2023.
Buðu upp á hanaat og beinan kynlífsstraum
Eins og áður segir fjarlægði NET88 ýmislegt efni af síðum sínum skömmu áður en styrktarsamningur við Crystal Palace var kynntur. Þar mátti áður finna auglýsingar fyrir beinar útsendingar af klámi og einn veðmálaflokkur síðunnar hét DÁ GÀ (ísl. Hanakjöt).
Hvað er markmiðið?
Eðlilegt er að velta því fyrir sér hvað Crystal Palace fær út úr því að bendla sig við svo vafasaman aðila, sem býður ekki enn upp á veðmál í Bretlandi og einblínir á víetnamskan markað þar sem veðmál eru ólögleg. Svarið við því virðist nokkuð augljóst, enginn býður betur og félagið græðir gríðarlegt fé.
Fyrir NET88 snýst málið að sjálfsögðu um að auglýsa síðuna, og græða allvel, en fyrirtækið getur ekki auglýst sig í Víetnam enda veðmál ólögleg. Reglugerðir þar eru mun strangari en það sem þekkist til dæmis hér heima fyrir á Íslandi.
Hart yrði tekið á því ef samfélagsmiðlastjörnur, útvarpsmenn og áhrifavaldar sæjust útbúnir NET88 græjum hvert sem þeir færu.
Aðgengi að síðunni er hins vegar nokkuð auðvelt í gegnum einfalda VPN tengingu, vandamálið er bara að koma síðunni á framfæri. Það þarf því að leita krókaleiða og til þess virðist enska úrvalsdeildin tilfallin.
Deildin nýtur gríðarlegra vinsælda í Víetnam og allir 380 leikir tímabilsins eru sýndir í beinni útsendingu. Löggjöf í kringum veðmálasíður í Bretlandi er með slakara móti, auðvelt er að stofna og fá starfsleyfi, og lítið eftirlit er með rekstrinum.
Ætlunin virðist því ekki vera að laða að breskan kúnnahóp heldur nota félög ensku úrvalsdeildarinnar til að auglýsa ólöglega starfsemi í Suður-Asíu.
Hvorki Wolverhampton Wanderers né Crystal Palace svöruðu fyrirspurnum Josimar um málið.