Innlent

„Þessi við­búnaður er meira var­úðar­ráð­stöfun fyrir hann sjálfan“

Ritstjórn skrifar
Mohamad Kourani við aðalmeðferð málsins gegn honum í Héraðsdómi Reykjaness.
Mohamad Kourani við aðalmeðferð málsins gegn honum í Héraðsdómi Reykjaness. Vísir

Mikill viðbúnaður er nú á Litla-Hrauni vegna Mohamads Kourani, fanga með langa afbrotasögu sem bíður nú dómsuppkvaðningar fyrir stunguárás, að sögn formanns Afstöðu. Hann segir um að ræða veikan mann sem ekki eigi heima í fangelsi heldur á sjúkrastofnun. Afstaða hyggst vitja fangans í fangelsinu síðar í vikunni.

Fram kom í frétt Nútímans í gær að viðbúnaður í fangelsinu á Litla-Hrauni vegna Mohamads Kourani, sem ákærður var fyrir hnífaárás í matvöruverslun í Valshverfinu í Reykjavík í mars, væri gríðarmikill - ætti sér vart hliðstæðu. Guðmundur Ingi Þóroddsson formaður Afstöðu, félags fanga, segir vissulega mikinn viðbúnað vegna Kourani í fangelsinu í augnablikinu.

„Það er alltaf af og til slíkur viðbúnaður, í gegnum tíðina hefur það alltaf verið af og til, en ég man ekki eftir að það hafi verið nákvæmlega svona. Þessi viðbúnaður er meira varúðarráðstöfun fyrir hann sjálfan, við erum að tala um einstakling sem er frekar veikur og fangelsi kannski ekki besti staðurinn fyrir hann. Þannig að það er aðallega verið að passa upp á að það bætist ekki á málafjöldann hjá honum,“ segir Guðmundur.

„Erum að sjá þetta aftur og aftur“

Hann setur spurningamerki við þá ákvörðun að Kourani sé metinn sakhæfur. Málið sé dæmi um mann sem greinilega hafi ekki fengið viðeigandi þjónustu.

„Og maður setur alltaf spurningamerki við geðheilsubatterí okkar Íslendinga, þegar kemur að mjög veikum og kannski erfiðum einstaklingum, þá virðist vera algjör skortur á úrræðum. Og jafnvel hræðslu geðbatterísins við að taka á móti slíkum mönnum. Ég held við séum ekki búin undir það og við erum að sjá þetta aftur og aftur,“ segir Guðmundur.

Afstaða reyni eftir fremsta megni að aðstoða í málum sem þessum.

„Við eigum ferð á Litla-Hraun í vikunni og ætlum að taka stöðuna á honum,“ segir Guðmundur.

Talsverður viðbúnaður var einnig í Héraðsdómi Reykjaness vegna Kourani, sem á yfir höfði sér sex til átta ára fangelsi fyrir hnífstunguna. Hann var áður dæmdur í fjórtán mánaða fangelsi fyrir líkamsárás og fleiri brot. Ekki náðist í Pál Winkel fangelsismálastjóra við vinnslu fréttarinnar.


Tengdar fréttir

„Ef þið haldið mér áfram í fangelsi þá verður vandamál“

„Ég kann ekki að gera árás með hníf. Ég er ekki ógnandi maður. Ég er bara venjulegur maður. Ef þið haldið mér áfram í fangelsi þá verður vandamál,“ sagði Mohamad Kourani fyrir dómi í dag en hann er meðal annars grunaður um að stinga tvo menn í OK Market í Valshverfinu í Reykjavík í mars á þessu ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×