Erlent

Talinn hafa myrt fjöl­skyldu í­þrótta­frétta­manns BBC

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Kyle Clifford er talinn hafa orðið konunum þremur að bana í gær.
Kyle Clifford er talinn hafa orðið konunum þremur að bana í gær. AP

Fréttastofa BBC hefur staðfest að konurnar þrjár sem Kyle Clifford er talinn hafa drepið fyrr í dag, eru fjölskylda starfsmanns þeirra, John Hunt. Þrjár konur fundust alvarlega særðar á heimili í Ashlyn Close í Bushey í Herfordshire í Englandi í gær, og eru nú látnar. Lögregla leitar enn árásarmannsins.

Kyle Clifford, 26 ára, er grunaður um að hafa átt þátt í dauða kvennanna þriggja. Hann er talinn hafa verið vopnaður lásboga, en samkvæmt lögreglu gæti öðrum vopnum einnig hafa verið beitt.

Konurnar þrjár sem voru myrtar eru Carol, eiginkona Hunts, og dætur þeirra tvær. Carol var 61 árs og dæturnar 25 og 28 ára.

Rannsókn er enn í gangi um það hvernig dauða kvennanna bar að garði. Rannsóknarlögreglumenn hafa beðið almenning um að tilkynna lögreglu um allt grunsamlegt sem þau gætu hafa borið augu á í nágrenni Ashlyn Cole á þriðjudaginn.Samkvæmt einum vitnisburði virðast konurnar hafa verið í gíslingu nokkrum klukkustundum áður en lögregla kom á vettvang.

Lögreglan segir Clifford vera hættulegan, hann sé mögulega vopnaður lásboga. Þeir sem verða hans varir eru beðnir um að sýna aðgát, og hafa samband við neyðarnúmerið 999 undireins.

Sjá fréttavakt BBC um málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×