Fótbolti

Nökkvi skoraði í MLS deildinni í nótt

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Nökkvi Þeyr Þórisson fagnar markinu sínu í nótt en þetta var annað mark hans í síðustu fjórum leikjum.
Nökkvi Þeyr Þórisson fagnar markinu sínu í nótt en þetta var annað mark hans í síðustu fjórum leikjum. Getty/Bill Barrett/

Akureyringurinn Nökkvi Þeyr Þórisson skoraði mark St. Louis City í MLS deildinni í nótt en það dugði þó skammt.

St. Louis tapaði 4-1 á heimavelli á móti Vancouver Whitecaps.

Nökkvi jafnaði metin í 1-1 á 27. mínútu eftir að Vancouver komst yfir eftir níu mínútur.  Nökkvi reyndi viðstöðulaust skot sem fór í varnarmann en hann náði frákastinu og skoraði.

Vancouver komst yfir mínútu fyrir hálfleik og skoraði síðan tvö mörk í seinni hálfleiknum.

Þetta var annað tap St. Louis í röð en liðið er í þrettánda og næst neðsta sætinu í Vesturdeildinni

Nökkvi Þeyr hefur skorað tvö mörk í nítján leikjum á tímabilinu. Það má sjá markið hans í nótt með því að fletta hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×