Körfubolti

Stór­kost­legt svar hjá ís­lensku strákunum eftir skellinn í gær

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Daníel Ágúst Halldórsson stýrði leik íslenska liðsins með glæsibrag í dag og gaf alls níu stoðsendingar.
Daníel Ágúst Halldórsson stýrði leik íslenska liðsins með glæsibrag í dag og gaf alls níu stoðsendingar. FIBA.basketball

Íslenska tuttugu ára landslið karla í körfubolta fór á kostum í öðrum leik sínum á Evrópumótinu í körfubolta i Póllandi.

Íslenska liðið spilaði þá aftur innan við sólarhring eftir þrjátíu stiga tap á móti gríðarsterku liði Litháen í gær. Strákarnir sýndu styrk sinn í frábærum sigri á Svartfellingum í dag. Leikurinn vannst á endanum með átján stigum, 71-53.

Íslenska liðið lenti reyndar langt undir í erfiðum fyrsta leikhluta en þegar strákarnir fundu taktinn þá áttu Svartfellingar fá svör á móti Norðurlandsmeisturunum. Íslenska liðið er í A-deildinni og er því að spila við sterkustu þjóðir álfunnar.

Almari Orri öflugur

Almar Orri Atlason átti skelfilegan leik í gær en hann sýndi í dag hversu öflugur leikmaður hann er. Almar Orri var stigahæstur með 23 stig auk þess að taka 5 fráköst og gefa 3 stoðsendingar.

Tómas Valur Þrastarson skoraði 14 stig og tók 7 fráköst, Elías Bjarki Pálsson var með 10 stig á 18 mínútum og þá var leikstjórnandinn Daníel Ágúst Halldórsson með 6 stig, 6 fráköst, 9 stoðsendingar og 3 stolna bolta. Ísland vann með 18 stigum þegar Elías Bjarki var inn á gólfinu og með 16 stigum þær mínútur sem Daníel Ágúst spilaði.

Lentu þrettán stigum undir

9-2 byrjun íslenska liðsins lofaði góðu en þremur mínútum síðar var staðan orðin 15-9 fyrir Svartfjallaland eftir þrettán stig þeirra í röð.

Almar Orri setti niður þrjá þrista í fyrsta leikhlutanum og var því búin að margfalda stigaskor sitt frá því kvöldið áður þegar hann var ískaldur í skotum sínum. Það dugði þó skammt því Svartfellingar voru þrettán stigum yfir eftir fyrsta leikhlutann, 27-14.

Íslenska liðið byrjaði annan leikhlutann aftur á móti með 10-2 spretti og kom sér aftur inn í leikinn. Liðið komst yfir undir lok leikhlutans en missti forystuna aftur frá sér. Almar Orri var kominn með 20 stig í hálfleik og munurinn var aðeins þrjú stig í hálfleik, 41-38 fyrir Svartfjallaland.

Frábær seinni hálfleikur

Íslensku strákarnir voru hins vegar komnir í stuð og léku mjög vel í þriðja leikhlutanum sem þeir unnu 21-8 og voru því tíu stigum yfir fyrir lokaleikhlutann. Tveir leikhlutar í röð sem strákarnir unnu með tíu stigum eða meira.

Vörnin var í aðalhlutverki hjá íslenska liðinu í lokaleikhlutanum og þar náði Tómas Valur meðal annars að verja skot, stela boltanum og fiska ruðning á stuttum kafla. Alvöru varnarmaður þar á ferðinni.

Íslenska liðið vann fjórða leikhlutann 12-4 og þar með leikinn örugglega með átján stigum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×