Fótbolti

Dag­skráin í dag: Besta-deildin, Opna meistaramótið, pílu­kast og hafnabolti

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Skagamenn heimsækja Fylki í Bestu-deildinni í kvöld.
Skagamenn heimsækja Fylki í Bestu-deildinni í kvöld. Vísir/Anton Brink

Sportrásir Stöðvar 2 og Vodafone bjóða upp á sjö beinar útsendingar á þessum fína mánudegi.

Við hefjum leik klukkan 09:00 þegar bein útsending frá fyrsta æfingadegi Opna meistaramótsins í golfi hefst á Stöð 2 Sport 4. Klukkan 13:00 hefst svo bein útsending frá seinni hluta dagsins á sömu rás.

Klukkan 18:00 er svo komið að Matchroom Darts á Vodafone Sport áður en Besta-deild karla í knattspyrnu tekur við klukkan 19:00. Fylkir tekur þá á móti ÍA á Stöð 2 Sport og á Stöð 2 Sport 5 eigast FH og HK við.

Stúkan verður svo á sínum stað þar sem umferðin í Bestu-deildinni verður gerð upp að leikjunum tveimur loknum.

Að lokum er Home Run Derby í MLB-deildinni í hafnabolta á dagskrá klukkan 00:00 á miðnætti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×