Innlent

Laðar fjár­festa að til að halda Skaganum á Skaganum

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Haraldur Benediktsson er bæjarstjóri Akraness.
Haraldur Benediktsson er bæjarstjóri Akraness. Vísir/Ívar Fannar

Bæjarstjóri Akraness segir bæjarstjórn gera allt sem í hennar valdi stendur til þess að halda Skaganum 3X í bænum. 

Skaginn 3x, einn stærsti vinnustaður bæjarins varð gjaldþrota fyrr í mánuðinum. Við tóku þreifingar á markaði og nú hafa tvö tilboð borist í rekstur og eignir úr þrotabúi Skagans 3X. Helgi Jóhannesson skiptastjóri Skagans vildi ekki gefa upp hverjir væru á bak við fyrirliggjandi tilboð, eða hvers eðlis þau væru.

„Það eru tvö tilboð í gangi, mishagstæð fyrir bæinn,“ segir Haraldur Benediktsson sem ræddi málið í Bítinu. „Við bindum enn þá miklar vonir við  það að það takist að endurreisa félagið á Akranesi, enda er það okkur mjög mikilvægt að halda þessum öfluga vinnustað.“

Það sé hins vegar alltaf fyrir hendi hætta á að fyrirtækið flytji úr bænum.

„Það voru gerð tilboð í einstaka hluta fyrirtækisins en það er ekki komin nein mynd á þetta. Við bæjaryfirvöld látum vita af því að við séum mjög styðjandi í því að endurreisa félagið í bænum, og gerum okkar til þess að það gerist.“

Tæki sem bærinn hafi til þess séu fá, utan þess að skaffa nýja lóð undir starfsemi fyrirtækisins ef því sé að skipta.

„Við höfum líka lagt mikið á okkur til þess að laða að þessa fjárfesta til þess að koma og blanda sér í þessa endurreisn. Þarna er bara svo mikill og góður mannskapur, mikil þekking sem væri mikil sóun ef færi forgörðum“

Haraldur segir Skagamenn góða í sókn, en þeir verði að spila varnarleik líka. 

„Það er bjart yfir Skaganum, við erum alltaf gulir og glaðir.“

Hann ræddi sömuleiðis önnur mál á Skaganum, svo sem hótelleysið og unga frumkvöðla á Bylgjunni í morgun. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×