Neytendur

Á­föstu tapparnir stóðust ekki gæðapróf

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Sporttappinn svokallaði til er til vinstri og tappinn sem verður tímabundið á flöskunum er til hægri. 
Sporttappinn svokallaði til er til vinstri og tappinn sem verður tímabundið á flöskunum er til hægri.  Powerade á Íslandi

Á næstu dögum og vikum verður íþróttadrykkurinn Powerade tímabundið seldur með hefðbundnum flötum áföstum töppum, í stað tappa með stút, eða sporttappans svokallaða, sem hefur prýtt flöskuna hingað til. 

Ástæðan er sú að tekið hefur í gildi reglugerð í Evrópu sem krefur alla framleiðendur um að setja áfasta tappa á plastflöskur sem hefur það að markmiði að draga úr plastmengun, samkvæmt fréttatilkynningu frá Coca Cola Europacific Partners.

Fram kemur að í gæðaprófunum á nýju áföstu sporttöppunum sem valdir höfðu verið fyrir Powerade fyrir Evrópumarkað kom í ljós að tapparnir hafi ekki uppfyllt þær gæða-, öryggis og þægindakröfur sem gerðar eru. 

Var því tekin sú ákvörðun að framleiða Powerade með flötum áföstum tappa tímabundið þar til áfastir sporttappar, sem uppfylla ströngustu kröfur um gæði, öryggi og þægindi eru tilbúnir úr framleiðslu. 

Breytingarnar gilda ekki bara hér á landi heldur í flestum löndum í Evrópu sem fá vöruna frá sama framleiðanda.

„Okkur þykir miður að ekki tókst að tryggja framtíðarlausn áður en reglugerðin tók gildi í Evrópu en okkur þykir alltaf mikilvægast að tryggja bestu gæði, öryggi og þægindi fyrir viðskiptavini okkar til lengri tíma. Við vonum að biðin eftir nýju áföstu sporttöppunum verði ekki of löng en þó er búist við að það taki einhverja mánuði. Við vitum að Powerade á marga dygga aðdáendur sem hafa vanist sporttappanum og vonum við að neytendur sýni þessari tímabundnu lausn skilning og þolinmæði,“ er haft eftir Sólrúnu Þórðardóttur vörumerkjastjóra Powerade á Íslandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×