Lífið

Bón­orðið eins og at­riði úr rómantískri kvik­mynd

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Jakob virðist mikill rómantíkus og fékk skipstjóra bátsins til að taka upp bónorðið.
Jakob virðist mikill rómantíkus og fékk skipstjóra bátsins til að taka upp bónorðið.

Athafnakonan Gerður Arinbjarnardóttir, eigandi kynlífstækjaverslunarinnar Blush, trúlofaðist sínum heittelskaða Jakobi Fannari Hansen í byrjun júlí. Gerður birti myndband af bónorðinu á Instagram í dag, en það minnir einna helst á atriði úr rómantískri kvikmynd.

Parið var statt á Ítalíu þegar Jakob fór á skeljarnar við sólsetrið um borð á bát á miðju Garda-vatninu. Óhætt er að fullyrða að Jakob sé afar rómantískur en hann fékk skipstjóra bátsins til liðs við sig sem tók bónorðið upp á myndband. 

„Hið full­komna bón­orð,“ skrifaði Gerður við færsl­una.

Parið hefur búið saman frá árinu 2018 og eru einstaklega samrýmd. Þau kynntust árið 2016 og tóku sér góðan tíma í að kynnast og deita. Gerður og Jakob Fannar voru viðmælendur í fasta liðnum Ást er hér á Vísi í nóvember 2022.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×