Íslenski boltinn

Sátt með sigurinn gegn sínu gamla fé­lagi: „Alltaf gaman að spila á móti þeim“

Runólfur Trausti Þórhallsson og Valur Páll Eiríksson skrifa
Natasha í stórleik Íslands og Þýskalands á dögunum.
Natasha í stórleik Íslands og Þýskalands á dögunum. Vísir/Anton Brink

Natasha Anasi-Erlingsson spilaði í dag sinn fyrsta leik í treyju Íslandsmeistara Vals sem var að sjálfsögðu gegn hennar fyrrum félagi Keflavík. Á endanum hafði Valur betur með herkjum og er nú jafnt Breiðabliki á toppi Bestu deildar kvenna í fótbolta þegar 13. umferðum er lokið.

Sigurinn var gríðarlega torsóttur og kom sigurmarkið ekki fyrr en í uppbótartíma. Um var að ræða sjálfsmark en Valskonum gat vart verið meira sama, níundi sigurinn í röð og liðið jafnt Blikum á toppnum. Það var því glöð Natasha sem mætti í viðtal eftir leik.

„Kíkti á hvaða leikur væri fyrst og sá Keflavík, geggjað. Það er alltaf gaman að spila á móti þeim og ég á enn margar vinkonur í liðinu en þetta var skemmtilegt, líka skemmtilegt að við höfum unnið,“ sagði Natasha sem spilaði með Keflavík frá 2017 til 2021.

„Við spiluðum mjög vel, héldum boltanum og vorum að finna svæði, fengum mörg færi en þurfum að klára þau í næsta leik,“ sagði Natasha en Valskonur skutu tvívegis í stöng sem og þær misnýttu þónokkur dauðafæri í dag.

„Það var erfitt andlega að vera í burtu frá fjölskyldunni svona lengi. Ég meiddist mjög snemma, náði að koma til baka og spila en það var upp og niður. Loksins fannst mér bara að ég þyrfti að spila meira og ákvað að koma heim. Það er mjög fínt að vera saman með fjölskyldunni líka,“ sagði Natasha um heimkomu sína.

Hún er nýgengin í raðir Vals frá norska liðinu Brann og sagði Val alltaf hafa verið fyrsta kost í sinni bók.

„Mér fannst eins og ég myndi líða vel hérna, þekki margar í liðinu og leist mjög vel á þjálfarateymið svo þetta var auðveld ákvörðun.“

„Gott að fá það, og fá tækifærið að spila þar. Koma með það sjálfstraust inn í þennan leik svo ég var mjög ánægð,“ sagði Natasha að endingu um landsleikjapásuna sem er nýafstaðin en Natasha stóð vaktina óvænt í vinstri bakverði í ótrúlegum 3-0 sigri Íslands á Þýskalandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×