Enski boltinn

Segir Rangnick hafa haft rétt fyrir sér varðandi vanda­mál Man Utd

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Erik Ten Hag er á leið inn í sitt þriðja tímabil með Man United.
Erik Ten Hag er á leið inn í sitt þriðja tímabil með Man United. Matthew Peters/Getty Images

Erik ten Hag, þjálfari Manchester United, verður seint sakaður um að vera annað en hreinskilinn. Hann hefur nú opinberað að Ralf Rangnick, fyrrverandi þjálfari liðsins, hafi haft rétt fyrir sér varðandi vandamál félagsins.

Rangnick var ráðinn tímabundið eftir að Ole Gunnar Solskjær var látinn fara. Rangnick hafði verið þekktari fyrir störf sín sem yfirmaður knattspyrnumála og náði ekki að láta liðið sýna sínar bestu hliðar inn á vellinum. Hann greindi hins vegar hvað var að utan vallar og virtist hitta naglann á höfuðið að mati Ten Hag.

Gekk Rangnick svo langt að segja að félagið þyrfti að fara í „skurðaðgerð á hjarta“ þar sem smávægilegar lagfæringar hér og þar væru ekki nóg.

„Rangnick hafði rétt fyrir sér. Við höfum lagt mikið á okkur undanfarin tvö ár en það sem hann sagði var 100 prósent rétt. Þetta er erfið og flókin aðgerð. Ég vissi þegar ég byrjaði að þetta yrði erfitt,“ sagði Ten Hag í viðtali við hollenska dagblaðið AD Sportwereld.

„Standardinn þarf að vera mun hærri, við þurfum að horfa meira fram á við,“ sagði Ten Hag jafnframt um spilamennsku liðsins.

Man United lagði Rangers 2-0 í dag með mörkum frá Amad Diallo og Joe Hugill. Ten Hag var sáttur með sigurinn og segist sáttur með þá leikmenn sem félagið hefur fengið til sín, þá Joshua Zirkzee og Leny Yoro en sá síðarnefndi spilaði einkar vel í dag.

Þá staðfesti þjálfarinn að hann væri aðdáandi miðvarðarins Mathijs De Ligt, miðvarðar Hollands og Bayern München, en hann væri ekki viss hvort De Ligt myndi ganga í raðir félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×