Enski boltinn

Kóngurinn Cantona: „Þarft að njóta leiksins og hafa ást­ríðu fyrir honum“

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Hinn einstaki Eric Cantona.
Hinn einstaki Eric Cantona. @ericcantona

Erik Cantona eða King Eric eins og hann er enn kallaður af stuðningsfólki Manchester United eftir ótrúlegan tíma sinn hjá félaginu fór yfir víðan völl í viðtali á dögunum. Hann ræddi framtíð félagsins en hann telur Sir Jim Ratcliffe rétta manninn í að stýra félaginu í rétta átt. 

Jafnframt ræddi hann dálæti sitt á hinum 16 ára gamla Lamine Yamal sem hann telur einn besta knattspyrnumann heims um þessar mundir.

Í viðtalinu sem birt var á íþróttamiðlinum The Athletic fer Cantona um víðan völl eins og honum einum er lagið. Hann er enn í guðatölu hjá sínum fyrrum félagi og eðlilega var það mikið til umræðu i viðtalinu sem tekið var af sérstökum Man United blaðamanni miðilsins.

„Ég vill skoða heiminn, það er lífsmottó mitt. Ég elska að skoða hvað er að gerast í heiminum, ég elska að fylgjast með fólki og skapa minn eigin heim. Ég vil að þessi heimur gefi mér innblástur í mínum eigin heimi,“ segir Cantona heimspekilegur í upphafi viðtalsins.

Þessi 58 ára gamli Frakki hefur aldrei talað né hagað sér eins og hinn hefðbundni fótboltamaður. Hann var með stuttan þráð sem leikmaður en fékk það frelsi sem hann þurfti á að halda hjá Manchester United, þökk sé Sir Alex Ferguson.

Hann gjörbreytti landslagi enskrar knattspyrnu og hjálpaði Man United að enda 26 ára bið eftir Englandsmeistaratitli. Alls vann hann fjóra slíka en þeir hefðu án efa orðið fimm hefði hann ekki verið dæmdur í leikbann fyrir að taka karatespark í bringu áhorfenda sem hreytti öllum fúkyrðum sem hann kunni í Cantona. Þá vann hann ensku bikarkeppninni tvívegis áður en hann lagði skóna óvænt á hilluna aðeins 31 árs gamall.

Viðtalið snýr svo að Sir Jim Ratcliffe, hans hlut í Man United, í gegnum félagið Trawlers Ltd. en það nafn er bein tilvitnun í einn frægasta blaðamannafund Cantona, þau vita sem vita.

„Ég er innblástur margra og fullt af fólki veitir mér innblástur,“ segir Cantona um nafnið á fyrirtækinu en hann og Ratcliffe hafa ekki verið í miklu sambandi síðan hann keypti 27,7 prósent hlut í Man United.

„Þeir eru að vinna í grunni félagsins, hlutum sem við getum í raun ekki séð en það er mikilvægt að vinna í grunninum þegar þú ert að byggja hús.“

„Við gerum stundum lítið úr stjórnarformönnum, við tölum um leikmenn og þjálfara en horfðu á Chelsea eftir að Roman Abramovich fór. Þetta er ekki sama félag, það er mjög mikilvægt að hafa einhvern sem stýrir skútunni.“

„Það er mikilvægt að hafa réttan stjórnarformann og Jim Ratcliffe er rétta manneskjan til að byggja þennan grunn. Man United mun svo á verða meðal þeirra bestu á ný eftir nokkur ár.“

Cantona var spurður út í ákvörðun Ratcliffe að láta allt að 250 starfsmenn Man United fara. Frakkinn sagði einfaldlega að stundum þyrfti slíkt að gerast, stundum þyrfti að taka erfiðar ákvarðanir.

Ratcliffe hefur líka skipað fólki að mæta til vinnu og vinna ekki að heiman. Það styður Cantona heilshugar.

„Þegar ég var hjá félaginu þá vorum við eins og fjölskylda. Maður heilsaði öllum, þetta var ein stór fjölskylda og það myndaði orkuna í félaginu. Ekki aðeins milli leikmanna eða starfsliðsins heldur allra í félaginu.“

Cantona elskar leikmenn sem koma honum á óvart. Hann er yfir sig hrifinn af Lamine Yamal, leikmanni Barcelona og spænska landsliðsins.

„Stundum kemur Bruno Fernandes mér á óvart, sem er gott.“

„Þú þarft að njóta leiksins og hafa ástríðu fyrir honum. Boltinn er vinur þinn, og það er yndislegt að eiga í sambandi við boltann. Boltinn er ekki óvinur þinn en alltof margir leikmenn virðast sjá boltann sem óvin. Ekki Yamal, þegar hann er með boltann finnst manni þeir vera vinir, bræður jafnvel,“ sagði Cantona að endingu á sinn einstaka hátt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×