Erlent

Flest smit í fyrsta sinn utan Afríkuríkjanna sunnan Sahara

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Skimað fyrir HIV í Kampala í Úganda.
Skimað fyrir HIV í Kampala í Úganda. Getty/Anadolu Agency/Nicholas Kajoba

Það gerðist í fyrsta sinn árið 2023 að flest ný tilfelli HIV greindust utan ríkja sunnan Sahara í Afríku. Afríkuríkjunum hefur tekist mjög vel til í baráttunni gegn veirunni og hefur fjöldi nýrra tilfella dregist saman um 56 prósent frá 2010.

Á heimsvísu hefur nýjum greiningum fækkað um 39 prósent.

Samkvæmt nýrri skýrslu UNAids hefur tilfellum fjölgað í Austur-Evrópu, Mið-Asíu, Suður-Ameríku, Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku.

Framkvæmdastjórinn Winnie Byanyima segir bakslag gegn mannréttindum í mörgum ríkjum hafa gert jaðarhópum erfiðara fyrir með að leita sér aðstoðar og á sama tíma glími ríki við erfiða skuldastöðu og samdrátt í fjárhagsaðstoð.

Hún segir einnig hættu á því að ný lyf sem hafa gjörbreytt baráttunni gegn sjúkdómnum verði aðeins aðgengileg í efnaðri ríkjum.

Leiðtogar ríkja heims samþykktu fyrir áratug að útrýma Aids fyrir árið 2030.

„Heimurinn er ekki á réttri leið til þess að ná markmiðinu,“ segir Byanyima. Hægt sé að ná því en til þess þurfi leiðtogar bæði ríkja og fyrirtækja að grípa til aðgerða.

Samkvæmt skýrslu UNAids voru 39,9 milljónir manna með HIV árið 2023. 1,3 milljón greindist með HIV á árinu og 630 þúsund létust af völdum veirunnar, þar af 76 þúsund börn.

Samkvæmt umfjöllun Guardian tilheyra flestir sem smitast jaðarsettum hópum en þar má nefna fíkla, kynlífsstarfsmenn, trans konur og samkynhneigða karla. Um sé að ræða samfélagslegan vanda.

Þá segir Byanyima ungar konur í Afríkuríkjum sunnan Sahara einnig sérlega viðkvæman hóp. Mikilvægt sé að útrýma fordómum og afnema lög sem banna til að mynda samkynhneigð og gera fólki þannig erfitt fyrir að fá hjálp.

Hér má finna ítarlega umfjöllun Guardian.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×