Innlent

Ná síður að hirða salernis­pappír vegna niður­skurðar

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Þessa mynd tók ljósmyndari Vísis í Hofsstaðaskógi fyrr í sumar. Papprínn lá víða um skóginn.
Þessa mynd tók ljósmyndari Vísis í Hofsstaðaskógi fyrr í sumar. Papprínn lá víða um skóginn. vísir/Vilhelm

Klósettpappír, hægðir og sóðaskapur í Hofsstaðaskógi er ein birtingarmynd niðurskurðar til Skógræktarfélags Íslands. Framkvæmdastjóri segir félagið ekki hafa tök á að sinna hreinsunarstarfi líkt og áður.

Sýndar voru myndir úr Hofastaðaskógi í kvöldfréttum Stöðvar 2 í vikunni þar sem mátti sjá mátti salernispappír á víð og dreif. Pappírinn liggur innan um trén og á göngustígum og er sterk vísbending um að ferðamenn komi við í skóginum til þess að gera þarfir sínar. Brynjólfur Jónsson, skógfræðingur og framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Íslands, segir þetta miður, þrátt fyrir að vandamálið sé ekki nýtt.

Staðan sé þó ef til vill verri en oft áður vegna niðurskurðar hjá félaginu.

„Á síðasta ári og á þessu ári fengum við ekki verkenfastyrki sem við höfum fengið í tuttugu ár. Þannig að við höfum sinnt þessu minna en árin áður og það eru bara fjárhagslegir hagsmunir sem knýja okkur til þess að minnka umhirðuna,“ segir Brynjólfur.

Hofsstaðaskógur sé einn af sautján opnum skógum sem Skógræktarfélag Íslands hafi með að gera. Styrkurinn sem umhverfisráðuneytið hafi áður veitt félaginu hafi farið í að sinna þeim.

„Þó það séu ekki háar upphæðir munar um það. Áður fyrr höfum við getað farið tvær ferðir í kringum landið en núna er það bara ein ferð.“

Hópur á vegum skógræktarfélagsins er nú Vestanlands og mun í vikunni taka til í Hofsstaðaskógi. Þar horfa málin því til betri vegar en Brynjólfur segir brottfall styrkveitingarinnar grátlegt og óútskýrt. Enn sé verk að vinna í uppbyggingu innviða og vandamálið hverfi því ekki, sérstaklega þar sem langt er á milli bensínstöðva og salernisaðstaðna.

„Ferðamenn eru bara eins og allir aðir, þeir þurfa að sinna sínum þörfum og því miður er það gert á þessum stöðum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×