Fótbolti

Frönsku stjörnurnar skoruðu í öruggum sigri á Banda­ríkjunum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Alexandre Lacazette fagnar marki sínu gegn Bandaríkjunum.
Alexandre Lacazette fagnar marki sínu gegn Bandaríkjunum. getty/Brad Smith

Stærstu stjörnur Ólympíuliðs Frakklands í fótbolta karla skoruðu í 3-0 sigri á Bandaríkjunum í A-riðli í kvöld.

Alexandre Lacazette, núverandi leikmaður Lyon og fyrrverandi leikmaður Arsenal, kom Frökkum á bragðið gegn Bandaríkjunum á 61. mínútu. Átta mínútum síðar bætti Michael Olise, nýr leikmaður Bayern München, öðru marki við.

Góð staða Frakklands varð enn betri á 85. mínútu þegar Loic Bade, leikmaður Sevilla, skoraði þriðja mark liðsins og þar við sat.

Í hinum leik A-riðils sigraði Nýja-Sjáland Gíneu með tveimur mörkum gegn einu.

Japanir sýndu Paragvæum enga miskunn í D-riðli og unnu 5-0 sigur. Paragvæ missti mann af velli með rautt spjald eftir 25 mínútur í stöðunni 1-0. Í seinni hálfleik skoraði Japan svo fjögur mörk og öruggur sigur liðsins staðreynd.

Ísrael og Malí gerðu 1-1 jafntefli í hinum leik D-riðils.

Eftir farsann hjá Marokkó og Argentínu vann Írak 2-1 sigur á Úkraínu í B-riðli. Í næstu umferð mæta stigalausir Argentínumenn Írökum.

Þá gerðu Egyptaland og Dóminíska lýðveldið markalaust jafntefli í C-riðli. Í hinum leik riðilsins bar Spánn sigurorð af Úsbekistan, 2-1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×