Íslenski boltinn

„Ég held að þetta hafi verið óður til ræstingafólksins“

Stefán Marteinn Ólafsson skrifar
Jóhann Kristinn Gunnarsson var sáttur með að fara heim frá Keflavík með þrjú stig.
Jóhann Kristinn Gunnarsson var sáttur með að fara heim frá Keflavík með þrjú stig. vísir/diego

Þjálfari Þórs/KA var sáttur eftir sigurinn á Keflavík, 0-1, suður með sjó í Bestu deild kvenna í kvöld.

„Ég er mjög ánægður með að vinna auðvitað. Það er ekki sjálfssagt hér á þessum velli,“ sagði Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þórs/KA, eftir sigurinn í kvöld.

„Við bjuggumst við þeim í þessari lágu blokk sem að þær hafa verið í og gert hrikalega vel. Ég vil bara byrja á því að hrósa Keflavíkurliðinu sem er að berjast á leiðinlegum enda deildarinnar því þær lögðu allt í þetta og þegar uppi er staðið þá eru þær örugglega mjög súrar með að þær hafi ekki fengið neitt út úr þessum leik.“

Þór/KA hefur aðeins verið að hiksta í síðustu umferðum en komust aftur á sigurbraut í kvöld.

„Þetta er sætur sigur, gríðarlega sætur. Þetta var svona leikur þar sem annað liðið er í skýjunum og hitt er alveg brjálað og ég hef verið á báðum endum. Þetta er mjög gott og ég hef hrósað mínu liði líka fyrir hvernig þær tækluðu þetta því þetta var baráttu leikur gegn erfiðu liði og vel skipulögðu. Síðustu leikir héngu ekki mikið yfir okkur. Þetta er bara eins og gengur og gerist í þessu öllu saman. Þú átt þína góðu og vondu daga. Við áttum sennilega ekki okkar besta dag í dag heldur en sem betur fer þá náðum við að taka öll stigin.“

Báðir markverðirnir í kvöld stóðu sig frábærlega og björguðu sínum liðum oft á tíðum vel.

„Ég held að þetta hafi verið óður til ræstingafólksins því bæði lið og sérstaklega mitt lið að við vorum að sóða verulega út en sem betur fer þá hreinsuðum við upp aftur.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×