Neytendur

Gapandi hissa að sjá túr­ista skipta á milli sín mat: „Ég sár­lega vor­kenndi þeim“

Jón Þór Stefánsson skrifar
„Þetta fólk var ekki á neinu fjögurra stjörnu hóteli að kaupa sér bjór. Þau voru að fá sér mat á vegasjoppu,“ segir Siggi Stormur.
„Þetta fólk var ekki á neinu fjögurra stjörnu hóteli að kaupa sér bjór. Þau voru að fá sér mat á vegasjoppu,“ segir Siggi Stormur. Vísir/Vilhelm/Egill

Sigurði Þ. Ragnarssyni, sem er betur þekktur sem Siggi Stormur, brá í brún þegar hann fékk sér ís í sjoppu í Borgarnesi. Hann sá fjóra ferðamenn á næsta borði skipta á milli sín einum diski með fiskrétti eða kjúklingi og einum súpudisk. Ástæðan er sú að túristarnir þurftu að spara á dýru Íslandi.

„Ég var alveg rassandi hissa. Það þarf ekkert að leyna því,“ segir Siggi í samtali við fréttastofu.

„Ég sest þarna þegar þau fjögur setjast á næsta borð. Í fyrstu vaknar enginn áhugi hjá mér á þessu. Svo sé ég að það er bara einn diskur af mat og einn diskur af súpu. Síðan sé ég að þau taka upp úr bakpokanum sínum sína eigin diska. Það verður að hafa það í huga að einn þeirra fékk áberandi mest af súpunni, en hinir þrír urðu að láta sér lynda að deila hinu í þrennt,“ útskýrir Siggi.

Hann ákvað að spyrja fólkið út í þetta, en vildi gera það á vinalegum nótum. Hann spurði hvort þau kynnu ekki vel við íslenskan mat, en þau sögðu peninga vera ástæðuna fyrir því að svona væri farið að.

„Þá fölnaði ég alveg,“ segir Siggi sem fjallaði um málið á Facebook-síðu sinni, en færsla hans bar yfirskriftina: Nú er ég hvumsa af þróun ferðaþjónustunnar. Þar segir hann að ferðamenn séu hættir að láta bjóða sér hvað sem er.

„Þetta auðvitað gekk algjörlega fram af manni. Mér var bara alls ekki sama sem Íslendingi að sjá útlendinga sem eru að skila okkur gjaldeyristekjum og þeir eiga ekki fyrir mat og ná ekki að fæða sig með þokkalegum hætti,“ segir Siggi við fréttastofu.

Matur mikilvægur hluti af góðu orlofi

Hann tekur fram að þegar þetta gerðist hafi verið grenjandi rigning úti, og hann veltir fyrir sér hvort þetta fólk, sem var mögulega í útilegu, hafi ekki séð fyrir sér að elda í vonda veðrinu.

„Ég vorkenndi þeim. Ég verð að viðurkenna það. Ég sárlega vorkenndi þeim að vera í þessum sprorum. Mikilvægur hluti af góðu orlofi er að gera vel við sig í mat. En þarna fannst mér ég vera að horfa upp á eitthvað allt annað.“

Siggi minnist á að í athugasemdum við Facebook-færslu hans hafi fólk farið að tala um önnur dæmi þar sem þeim þykir verðlagning of há. Einn hafi talað um bjór sem hafi kostað formúgu á fjögurra stjörnu hóteli. Að mati Sigga er þó eðlismunur á þessu tvennu.

„Þetta fólk var ekki á neinu fjögurra stjörnu hóteli að kaupa sér bjór. Þau voru að fá sér mat á vegasjoppu. Það er nú kannski ekki þar sem maður býst við að verðið sé hæst. Ég myndi búast við því að það væri fullkomlega eðlilegt að fjögurra stjörnu hótel væri með aðra álagningu heldur en veitingastaður við Þjóðveginn. Ég var bara gáttaður.“


Tengdar fréttir

Dýr smjörvi á Egils­stöðum vekur mikla at­hygli

Í gær var vakin athygli á því á Facebook-síðunni „vertu á verði - eftirlit með verðlagi,“ að 400 grömm af klassískum smjörva kostaði 1.245 krónur á N1 á Egilsstöðum. Spurt var hvort þetta væri ekki fullmikið verð, og undirtektir voru miklar.

Tæpar 2500 krónur fyrir litla samloku á Geysi

Meðlimur í Facebook-hópnum Vertu á verði - eftirlit með verðlagi vekur athygli á að samlokur á stærð við rúnstykki á matsölustaðnum við Geysi kosti tæpar 2500 krónur. Eigandi staðarins segir samlokurnar matarmiklar og nýsmurðar með áleggi beint frá býli. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×