Lífið samstarf

Bylgju­lestin klárar ferða­lagið í Hafnar­firði á laugar­dag

Bylgjulestin
Boðið verður upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá þegar Bylgjulestin mætir í Hafnarfjörð á morgun laugardag. Láttu endilega sjá þig!
Boðið verður upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá þegar Bylgjulestin mætir í Hafnarfjörð á morgun laugardag. Láttu endilega sjá þig!

Síðasti viðkomustaður Bylgjulestarinnar þetta sumarið er Hafnarfjörður. Bylgjubíllinn, með þau Braga Guðmunds og Kristínu Ruth innanborðs, mætir í fjörðinn fallega á morgun laugardag en fimmta helgi Hjarta Hafnarfjarðar fer fram um helgina.

Bylgjan verður í beinni milli kl. 12 og 16 á laugardag og má búast við góðum gestum eins og venjulega. Trúbadorinn Tryggvi Vilmundar kemur í heimsókn og tónlistarmaðurinn Hreimur Heimis kíkir við í stutt spjall milli klukkan 15 og 16.

Með Bylgjulestinni verða matarvagnar frá Götubitanum, boðið verður upp á tónlist, ókeypis andlitsmálning og blaðrarinn mætir og gleður börnin. Í bjórtjaldinu fer fram heimsmeistaramótið í Beerpong en skráning fer fram á Tix.is.

Veðrið lék við bæjarbúa þegar Bylgjulestin heimsótti Hafnarfjörð síðasta sumar.

Um kvöldið verða svo rosalegir tónleikar í Bylgjutjaldinu þar sem fram koma Króli ásamt hljómsveit, Dj Ingi Bauer, Háski og Sprite Zero Klan. Ókeypis er inn á tónleikana.

Hér er hægt að kynna sér nánar dagskrá Hjarta Hafnarfjarðar.

Blaðrarinn mætir og gleður börnin.

Kíktu við og taktu þátt í fjörinu!

Gríptu með þér hollustubita frá MUNA og skoðaðu glæsilega bíla frá bílaumboðinu Öskju. Svalaðu þorstanum með Appelsíni án sykurs, gæddu þér á góðgæti frá Nóa Síríus og Sláðu í gegn um land allt með Golfsambandi Íslands og Bylgjulestinni.

Á laugardagskvöldinu býður Bylgjan upp á tónleika í Bylgjutjaldinu. Þar koma fram Króli ásamt hljómsveit, Dj Ingi Bauer, Háski og Sprite Zero Klan. Ókeypis er inn á tónleikana.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×