Innlent

Eldur í gas­kút á Egils­götu

Jón Þór Stefánsson skrifar
Frá slökkviliðsaðgerðum á Egilsgötu.
Frá slökkviliðsaðgerðum á Egilsgötu. aðsend

Slökkviliðið þurfti að sinna útkalli í kvöld vegna elds sem kviknaði út frá gaskúti við grill á Egilsgötu í Reykjavík.

Þetta staðfestir Bjarni Ingimarsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við fréttastofu.

Verkefni slökkviliðsins er lokið. Gaskúturinn mun hafa verið nokkuð frá húsi.

Slökkviliðið hjálpaði við að slökkva eldinn og beið síðan á meðan að lak úr kútnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×