Fótbolti

Bordeaux er gjald­þrota og verður áhugamannalið

Siggeir Ævarsson skrifar
Tímabilið 2018-19 lék liðið í Evrópukeppni félagsliða en síðan þá hefur fjarað hratt undan málum.
Tímabilið 2018-19 lék liðið í Evrópukeppni félagsliða en síðan þá hefur fjarað hratt undan málum. Vísir/EPA-EFE/ANATOLY MALTSEV

Franska liðið FC Girondins de Bordeaux, sem er sjötta sigursælasta lið í sögu franskrar knattspyrnu, hefur verið lýst gjaldþrota og mun leika frönsku C-deildinni í haust, sem er hálf-atvinnumannadeild.

Bordeaux hefur alls unnið frönsku úrvalsdeildina, Ligue 1, sex sinnum, síðast árið 2009. Liðið komst í kjölfarið í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar árið eftir en síðan þá hefur hallað undan fæti.

Gus Poyet tók við þjálfun liðsins í janúar 2018 og stýrði liðinu í 6. sæti sem tryggði því þátttökurétt í Evrópukeppni. Hann var rekinn frá liðinu í ágúst sama ár eftir að Gaëtan Laborde var seldur til Montpellier án samráðs við hann. Gagnrýndi hans stjórnun liðsins opinberlega og var í kjölfarið látinn taka pokann sinn.

Tímabilið 2020-21 gekk fátt upp hjá liðinu sem endaði í 12. sæti en til að bíta höfuðið af skömminni lýsti liðið yfir gjaldþroti og var í kjölfarið sett í fjárhagslega gjörgæslu. Liðið fékk að halda sæti sínu í efstu deild þrátt fyrir fjárhagsörðugleika en endaði í neðsta sæti vorið eftir. 

Franska knattspyrnusambandið dæmdi liðið niður í C-deild í kjölfarið vegna fjármálaóreiðu en forsvarsmenn Bordeaux áfrýjuðu og liðið fékk að leika í B-deildinni. En nú er komið að skuldadögum.

Vonir stóðu til að eigendur Liverpool, Fenway Sports Group (FSG), myndu kaupa klúbbinn en þær viðræður hafa nú siglt í strand og forsvarmenn Bordeaux hafa ákveðið að aðhafast ekki frekar og reyna að byggja liðið upp frá grunni.

Bordeaux er því ekki atvinnumannalið lengur og allir leikmenn liðsins eru lausir undan samningum sínum. Markmið liðsins er að hlúa að ungum og upprennandi leikmönnum, sem gæti þó reynst erfitt þar sem æfingasvæði liðsins og akademía þess loka í kjölfar þessara aðgerða.

Nokkrir af bestu leikmönnum Frakka hafa einmitt komið upp í gegnum téða akademíu. Þeirra frægastur er sennilega Zinédine Zidane, en þá má einnig nefna leikmenn eins og Bixente Lizarazu, Jules Koundé og Aurélien Tchouaméni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×