Leik lokið: Breiða­blik - Fylkir 1-0 | Blikar aftur á toppinn

Hinrik Wöhler skrifar
Andrea Rut Bjarnadóttir í leik með Breiðabliki í Bestu deildinni í sumar.
Andrea Rut Bjarnadóttir í leik með Breiðabliki í Bestu deildinni í sumar. Vísir/Diego

Breiðablik endurheimti toppsæti Bestu deildar kvenna í fótbolta í kvöld með 1-0 sigri á Fylki. Gestirnir eiga þó hrós skilið fyrir baráttu sína á vellinum og fengu ágætis færi þegar leið á leikinn til að stela stigi í kvöld.

Fylkiskonur geta þakkað markverði sínum, Tinnu Brá Magnúsdóttur, að tapið var ekki stærra en hún hélt samherjum sínum inn í leiknum með laglegum vörslum. Sigurmark Ástu Árnadóttur í upphafi leiks dugði til og Breiðablik sigrar fimmta leikinn í röð.

 Uppgjör og viðtöl væntanlega á Vísi í kvöld.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira