Fótbolti

Fyrir­huguð sala á E­ver­ton hvorki gengur né rekur

Siggeir Ævarsson skrifar
Dominic Calvert-Lewin í miklu uppnámi. Myndin tengist fréttinni óbeint
Dominic Calvert-Lewin í miklu uppnámi. Myndin tengist fréttinni óbeint vísir/Getty

Leit Everton að nýjum eigendum hefur siglt í strand eftir að Friedkin Group, félag bandaríska auðjöfursins Dan Friedkin, sleit viðræðum um kaup á félaginu.

Sala á Everton hefur legið í loftinu í nokkurn tíma en síðastliðið haust gaf eigandi félagsins, Farhad Moshiri, grænt ljós á viðræður við bandaríska fjárfestingafélagið 777 Partners.

Þær viðræður báru ekki ávöxt en voru langt komnar. Í ferlinu lánaði fjárfestingafélagið Everton 200 milljónir punda en nú stendur 777 Partners í málaferlum í New York þar sem félagið er sakað um fjármálamisferli.

Þessi málaferli og það flækjustig sem þau skapa í kringum endurgreiðsluna á láninu eru sögð hafa orðið til þess að Dan Friedkin bakkaði út úr viðræðunum í fyrradag.

Everton er því aftur komið á markaðinn en Friedkin Group var fjórði aðilinn sem fór í samningaviðræður um kaup á liðinu á síðustu tveimur árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×