Innlent

Á­hyggjur af gasmengun vegna jökulhlaups

Eiður Þór Árnason skrifar
Jökulhlaup er hafið í Skálm.
Jökulhlaup er hafið í Skálm. vísir/vilhelm

Útlit er fyrir að jökulhlaup sé hafið við Mýrdalsjökul og er fólki er ráðlagt frá því að vera á ferli nærri upptökum Múlakvíslar og við Kötlujökul. Mestar áhyggjur eru af gasmengun. Hringvegur um Mýrdalssand er lokaður til austurs vegna vatns sem flæðir yfir hann úr ánni Skálm.

„Við sjáum núna að rafleiðni er byrjuð að aukast til muna og vatnshæð líka í Skálm þannig líklega er þetta að skila sér í austurátt frá Kötlujökli og það virðist vera að hefjast jökulhlaup núna,” sagði Einar Hjörleifsson, náttúruvásérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands í samtali við fréttastofu á öðrum tímanum. 

Vatnið sé að koma út við Skálm, austan við Mýrdalsjökul og líkur séu taldar á því að meginflaumur vatnsins komi úr Kötlujökli.

Mest hætta við Kötlujökul og Emstrur

Einar segir það árlegan viðburð að katlar tæmi sig við Mýrdalsjökul en atburðirnir valdi sjaldan stóru jökulhlaupi.

„Síðast var stóratburður í Skálm 2011 sem varði í nokkrar klukkustundir. Mesta hættan sem stafar af þessu er nærri jökulsporðunum þar sem jökulvatnið geisar út.“

Þar fylgi mikil gasmengun og geti verið hættulegt fyrir fólk að vera í lægðum í landslaginu nálægt jökulsporðunum þar sem gasið safnast saman. Veðurstofan hefur verið í samskiptum við almannavarnir sem hefur unnið með lögreglu og ferðaþjónustuaðilum á svæðinu við að upplýsa fólk um stöðuna. Mestar áhyggjur eru af ferðafólki við Kötlujökul í austanverðum Mýrdalsjökli og Emstrur.

Sáu fyrst merki í gærkvöldi

„Í gærkvöldi sáum við að það jókst aðeins órói á nokkrum stöðum umhverfis Mýrdalsjökul og svo tókum við eftir því í nótt og undir morgun að mæld rafleiðni hækkaði mikið í Skálm sem er austan Mýrdalsjökuls sem gaf til kynna að meira jarðhitavatn væri að renna í Skálm. 

Svo sáum við í morgun klukkan átta að órói fór að aukast aftur mikið í kringum stöðvarnar í kringum Mýrdalsjökul sem bendir til að þar séu katlar búnir að tæma sig,“ segir Einar. 

Fréttin var uppfærð klukkan 13:30 með upplýsingum um að jökulhlaup virtist vera hafið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×