Sport

Guð­laug Edda datt í brautinni en kláraði í 51. sæti

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðlaug Edda Hannesdóttir sést hér á ferðinni í keppninni í París í dag. Hún sýndi mikla seiglu með því að klára.
Guðlaug Edda Hannesdóttir sést hér á ferðinni í keppninni í París í dag. Hún sýndi mikla seiglu með því að klára. Getty/Anne-Christine Poujoulat

Guðlaug Edda Hannesdóttir varð í morgun fyrsti Íslendingurinn til að keppa í þríþraut á Ólympíuleikunum.

Hún náði að klára keppnina og koma í mark í 51. sæti. Hún lenti í því að detta á fimmta hring á hjólinu og féll niður um fjölmörg sæti við það. Guðlaug Edda harkaði samt af sér og tókst að klára keppnina.

Guðlaug kom í markið fimmtán mínútum og 51 sekúndu á eftir sigurvegaranum sem kom frá Frakklandi. Guðlaug var algjörlega búin á því í lokin og gat því allt sitt í keppnina.

Guðlaug Edda á ferðinni í Paris í morgun.Skjámynd

Fjórar konur féllu úr leik og þar á meðal var hin norska Lotte Miller. 55 hófu keppni á ráslínunni og var Guðlaug Edda því sú síðasta af þeim sem komust í mark.

Komst hæst í 39. sæti

Guðlaug Edda kláraði sundhlutann á 24 mínútum og 49 sekúndum og var þá í 46. sæti í keppinni. Guðlaug Edda var einnig í 46. sætinu eftir fyrri sundhringinn sem var 910 metrar. Hún var þarna orðin tveimur mínútum og 44 sekúndum á eftir fremstu konu eftir þetta eins og hálfs kílómetra sund.

Við tóku 40 kílómetrar á hjólinu. Guðlaug byrjaði vel og var komin upp um þrjú sæti og í sæti 43 eftir fyrstu fimm kílómetrana.

Guðlaug kom sér alveg upp í 39. sæti en varð síðan fyrir því óhappi að detta á blautri götunni en hleðslusteinarnir voru sleipir eftir rigningu næturinnar. Við það féll hún alveg niður í 49. sæti.

Guðlaug Edda endaði hjólahlutann í 49. sæti og datt niður í 51. sæti í skiptingunni. Hún var þá búin að vera á fullu í einn klukkutíma og rúmar 29 mínútur.

Síðustu af þeim sem komust í mark

Hún hefur átt í mestum vandræðum með hlaupið eftir mjaðmarmeiðslin og dróst vel aftur úr í því. Svo fór að Guðlaug kláraði langsíðust af þeim sem komust í mark. Lokatími hennar var 2:10:46 mín eða sex mínútum á eftir konunni í 50. sætinu.

Heimastúlkan Cassandre Beaugrand varð Ólympíumeistari en Julie Derron frá Sviss fékk silfur og bronsið fór til Skotans Beth Potter.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×