Áður hefur verið fjallað um hækkandi bjórverð hér á landi. Á sama tíma og verðið hefur hækkað hafa mörg bjórglösin minnkað, úr 500 millilítrum í 400 millilítra. Dæmi er um að bjórinn hafi verið seldur á 2000 krónur, og það á tilboði.
Örlygur Hnefill Jónsson er einn eiganda Fasteignafélags Húsavíkur, sem meðal annars rekur Ja Ja Ding Dong. Barinn opnaði í júlí árið 2020 og er nefndur eftir samnefndu – og vinsælu – lagi úr Eurovision-kvikmynd Wills Ferrells.
Örlygur Hnefill segist í samtali við Vísi ekki hafa velt bjórverðinu sérstaklega fyrir sér, en beinir sjónum að erfiðum aðstæðum til reksturs á Húsavík.
„Þetta er erfiðara en þar sem fjölmennið er. Við erum með töluvert mannahald og svo á er nokkur skerðing í gistibókunum hér,“ segir Örlygur Hnefill.
Hann segir 80 prósent af ferðamanna vanalega flutta eftir suðurleiðinni um landið, að Höfn í Hornafirði og til baka.
Berjast fyrir þjóðina
„Ég hef barist fyrir því lengi að það verði eitthvað gert til að laga hér brýr í Þingeyjarsýslu. Við erum hér með demantshringinn, Dettifoss, hluta af Vatnajökli og Ásbyrgi. Skjálfandaflóann. Allt þar á milli. En það er ekkert gert til að bæta aðstöðu fyrir ferðamenn til að koma inn á þetta svæði. Ég hef ekki fylgst með verði á bjór þarna en það eru lítil umsvif meðal annars út af þessu.“
Mikilvægast sé að halda umsvifum.
„Til þess að það fáa fólk sem vill koma til okkar hafi þó hótelgistingu. Og hún er bara á eðlilegu verði, í raun lágu verði.“
„Við erum að framleiða hér meira rafmagn núna en annars staðar á landinu og erum að berjast fyrir þessa þjóð. En ef einhver bjórflaska kostar nokkrum hundrað köllum meira og það er fréttaefni þá verður svo að vera,“ segir Örlygur.
Standa straum af kostnaði
Sonur Örlygs Hnefils heitir Gunnar Hnefill og hefur staðið í daglegum rekstri barsins.
„Það er bara verið að standa undir kostnaði á litlum stað, sem er ekki að taka marga gesti. Margir aðrir staðir fóru að minnka magn. Þá er lægra verð en í raun ekki,“ segir Gunnar Hnefill í samtali við Vísi.
„Ég tók við þessu fyrirtæki í fyrra þegar það var komið á erfiðan stað, eftir Covid og fleiri hluti. Maður er bara að standa straum af kostnaði. Ef ég væri að reka bar í Reykjavík væri maður með annars konar konsept,“ segir Gunnar. Hann nefnir einnig þyngri lánabyrði með hærri stýrivöxtum auk samgangna á norðausturlandi.
„Við erum með ónýta brú hérna til Húsavíkur sem átti að endurnýja fyrir hartnær fimmtíu árum, en hefur enn ekki verið farið í.“