Íslenski boltinn

Staða Arnars hafði verið ó­traust um hríð

Valur Páll Eiríksson skrifar
Arnar stýrði sínum síðasta leik með Val í 4-1 tapi fyrir St. Mirren í Skotlandi í gær.
Arnar stýrði sínum síðasta leik með Val í 4-1 tapi fyrir St. Mirren í Skotlandi í gær. Getty

Stjórn knattspyrnudeildar Vals hafði ákveðið fyrir leik gærkvöldsins við St. Mirren í Skotlandi að skipta um þjálfara. Ljóst er að stjórnin átti ekki samningaviðræður við Srdjan Tufegdzic, Túfa, um að taka við liðinu á mettíma eftir leik.

Valur tapaði 4-1 fyrir St. Mirren í Sambandsdeild Evrópu í gærkvöld og féll þannig úr keppni. Örfáum klukkustundum eftir leik tilkynnti knattspyrnudeild félagsins að Arnari Grétarssyni hefði verið sagt upp störfum og að Túfa myndi taka við.

Samkvæmt heimildum Vísis hafði staða hans sem þjálfari Valsliðsins verið til alvarlegrar skoðunar í einhverjar vikur og var 4-1 tap fyrir Fram kornið sem fyllti mælinn.

Valsmenn stukku til þegar ljóst var að Túfa væri að flytja heim og laus undan sínum samningi í Svíþjóð. Hann þjálfaði lið Skövde áður en hann sagði upp 15. júlí síðastliðinn og flutti til Íslands.

Þetta rímar við orð formanns knattspyrnudeildar, Barkar Edvardssonar, sem sagði ástæðu þjálfarabreytingarinnar vera þá að almenn stefna Valsliðsins væri ekki rétt. Liðið væri á rangri leið.

„Þetta snýst ekki um einstaka úrslit eða leiki heldur er það einfaldlega mat okkar í stjórn að við séum ekki á réttri leið með liðið og því var þessi ákvörðun tekin, “ var haft eftir Berki í yfirlýsingu Vals í gær.

Túfa stýrir Val í fyrsta sinn gegn fyrrum félögum hans í KA. Liðin eigast við norðan heiða á þriðjudaginn næst komandi.

Túfa var leikmaður KA frá 2006 til 2013 og var í þjálfarateymi liðsins til 2018, þar af sem aðalþjálfari frá 2015 til 2018.

Arnar Grétarsson vildi ekki tjá sig um brotthvarfið frá Val að svo stöddu þegar íþróttadeild Vísis innti eftir slíku í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×