Innlent

Kveikur frá Stangarlæk fallinn

Jón Þór Stefánsson skrifar
Kveikur var tvímælalaust stjarna landsmóts hestamanna í Víðidalnum árið 2018 þar sem Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir sýndi hann.
Kveikur var tvímælalaust stjarna landsmóts hestamanna í Víðidalnum árið 2018 þar sem Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir sýndi hann. Mynd/Jens Einarsson

Hesturinn Kveikur frá Stangarlæk var felldur í gær eftir að hafa fengið hrossasótt í Hollandi. Hann var tólf vetra gamall.

Gitte Fast Lambertsen, eigandi Kveiks, greinir frá þessu á Facebook, en Eiðfaxi greinir jafnframt frá tíðindunum.

Hún segir að hann hafi farið á dýraspítala vegna einkenna hrossasóttar á miðvikudagskvöld. Í fyrstu voru merki um að honum væri að batna, en í gærmorgun fór ástand hans versnandi og því fór hann í aðgerð. Í ljós kom að snúið væri upp á líffæri Kveiks og hann með æðaskemmdir.

Í færslu Gitte segir að eftir aðgerðina hafi þau vonast til að hann myndi ná sér, en allt kom fyrir ekki.

Árið 2020 var greint frá því að Kveikur, sem var kallaður stjarna Landsmótsins 2018, hefði verið seldur til Danmerkur fyrir metfé. Kaupverðið var þó ekki gefið upp.

„Við í Lindholm Hoje erum miður okkar. Hugur okkar er hjá þessum einstaka hesti, sem er ekki lengur á meðal okkar. Auðvitað vorkennum við sjálfum okkur, en við hugsum líka til fólksins sem ræktaði hann á Stangarlæk, og fyrrverandi þjálfara og knapa sem sýndi þennan hest frábærlega á Landsmótinu 2018,“ segir í færslu Gitte.

„Þetta er einstakur höfðingi sem er ofboðslega geðgóður og skemmtilegur hestur, hann hefur allt með sér,“ sagði Aðalheiður Anna knapi í viðtali við Magnús Hlyn Hreiðarsson sumarið 2018. Þá var Kveikur hafður í sæðingum, í stað þess að eltast við merar úti í móa, og eftirspurn mikil eftir frammistöðuna á landsmótinu.

Folatollurinn hljóðaði upp á 250 þúsund krónur og var reiknað með því að það yrði notað á um hundrað merar það sumar. Skráð afkvæmi Kveiks í Worldfeng, upprunaættbók íslenska hestins, voru 550 talsins.

Á vef Eiðfaxa segir að Kveikur hafði verið að stimpla sig inn meðal fremstu kynbótahesta. Afkvæmi hans hafi vakið verðskuldaða athygli á nýliðnu Landsmóti. 

„Afkvæmi hans munu bera hróður hans um ókomna tíð.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×