Fótbolti

Mateta kom heima­mönnum í undan­úr­slit

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jean-Philippe Mateta skoraði sigurmark Frakklands gegn Argentínu með skalla eftir hornspyrnu.
Jean-Philippe Mateta skoraði sigurmark Frakklands gegn Argentínu með skalla eftir hornspyrnu. getty/Juan Manuel Serrano Arce

Heimalið Frakka er komið í undanúrslit í fótboltakeppni karla á Ólympíuleikunum í París eftir sigur á Argentínumönnum, 1-0, í kvöld.

Leikurinn hófst mjög fjörlega því strax á 5. mínútu kom Jean-Philippe Mateta, framherji Crystal Palace, Frökkum yfir.

Þessi kröftuga byrjun reyndist ekki fyrirboði um það sem koma skyldi því fátt markvert gerðist það sem eftir lifði leiks. 

Argentínumenn voru meira með boltann en gekk illa að opna frönsku vörnina. Luciano Gondou komst næst því að skora í uppbótartíma en Guillaume Restes varði skot hans og tryggði franska liðinu sigurinn, 1-0. Frakkar hafa ekki enn fengið á sig mark á Ólympíuleikunum.

Í undanúrslitunum mætir Frakkland Egyptalandi sem vann Paragvæ eftir vítaspyrnukeppni, 5-4.

Diego Gómez kom Paragvæum yfir á 71. mínútu en Ibrahim Adel jafnaði fyrir Egypta þegar tvær mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. 

Ekkert var skorað í framlengingunni og því réðust úrslitin í vítakeppni. Þar skoruðu Eygptar úr öllum sínum spyrnum en Hamza Alaa, markvörður þeirra, varði spyrnu Marcelos Pérez.

Spánn vann öruggan sigur á Japan, 0-3. Fermín López, sem var í Evrópumeistaraliði Spánverja fyrr í sumar, skoraði tvö fyrstu mörkin og Abel Ruiz gulltryggði svo sigur þeirra.

Í undanúrslitunum mætir Spánn Marokkó sem rúllaði yfir Bandaríkin, 4-0, í fyrsta leik dagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×