Innlent

Bíll al­elda á Hellis­heiði

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Þrír menn komust úr bílnum af sjálfsdáðum að sögn lögreglu.
Þrír menn komust úr bílnum af sjálfsdáðum að sögn lögreglu. Oddgeir Páll Georgsson

Bíll er alelda á Suðurlandsvegi við Kambana á Hellisheiði. Þrír voru í bílnum þegar eldurinn kviknaði en þeir komust allir út af sjálfsdáðum. Lögregla er á leið á vettvang.

Rannveig Brynja Sverrisdóttir, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, staðfestir þetta í samtali við fréttastofu. Hún gat litlar upplýsingar veitt þar sem lögregla er enn á leið á vettvang.

Veistu meira um málið? Ertu með myndir af vettvangi? Fréttastofa tekur við ábendingum á netfangið ritstjorn@visir.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×