Neytendur

Sleppur við sektir eftir aug­lýsingu um hundrað prósent lán

Jón Þór Stefánsson skrifar
Auglýsingarnar vörðuðu fjármögnun á bílum. Myndin er úr safni.
Auglýsingarnar vörðuðu fjármögnun á bílum. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm

Bílasala Guðfinns og fata- og skartgripaverslunin Brá sleppa við að þurfa að greiða dagsektir vegna villandi og ófullnægjandi upplýsinga á vefsíðum sínum. Þetta kemur fram á vef Neytendastofu sem hafði áður úrskurðað um að verslunarnar tvær skyldu greiða dagsektir myndu þær ekki gera úrbætur.

Mál bílasölunnar og Brár eru aðskilin. Annars vegar hafði Neytendastofa komist að þeirri niðurstöðu að Bílasala Guðfinns hefði brotið gegn ákvæðum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðsetningu með því að fullyrða á vefsíðu sinni að „100% lán í boði“ þar sem fjármögnunin var í raun samsett.

Í úrskurði Neytendastofu kemur fram að frá apríl í fyrra og þangað til í maí á þessu ári hefði stofnunin ítrekað sent bílasölunni bréf en lítið fengið af svörum.

Það hafi hins vegar þegar málið var tekið til meðferðar að bílasalan gaf þau svör að með hundrað prósent lánamöguleika væri átt við að áttatíu til níutíu prósenta fjármögnun frá lánafyrirtækjum sem láni til bílaviðskipta. Eftirstöðvarnar væru síðan oft á greiðslukortum og á Pei, Netgíró, og Aur. Þá ef viðskiptavinir væru með eldri bíl þá væri beðið með greiðslu.

„Engin frekari svör bárust frá félaginu þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir,“ segir í úrskurði Neytendastofu sem komst að þeirri niðurstöðu að samsett fjármögnun með þessum hætti gæti ekki talist sem hundrað prósent lán.

Neytendastofa bannaði Bílasölu Guðfinns að viðhafa þessa viðskiptahætti gerði henni að greiða tuttugu þúsund krónur á dag þangað til farið væri að ákvörðun hennar. Líkt og áður segir gerði bílasalan úrbætur sem Neytendastofu þykir fullnægjandi.

Þess má geta að árið 2022 kom upp sams konar mál þar sem Neytendastofa komst að þeirri niðurstöðu að fullyrðingar Stóru bílasölunnar ehf. um möguleika á hundrað prósent láni. Nánar má lesa um það hér.

Mega víst skila nærfötum

Hins vegar var það mál verslunarinnar Brár, sem er rekin af Hjartadrottningunni ehf. Neytendastofa sagði fyrirtækið hafa veitt rangar upplýsingar um frest til að falla frá samningi og að sá réttur kaupenda væri takmarkaður með ólögmætum hætti.

Málið varðaði skilmála á vefsíðu verslunarinnar. Á meðal þess sem Neytendastofa benti á er að í lögum komi fram að neytandi hafi fjórtán daga frest til að falla frá samningi sem byrji að líða þegar neytandi á vöruna í sína vörslu, en ekki þegar varan væri komin á valinn afhendingarstað líkt og sagði í skilmálanum hjá Brá.

Þá setti stofnunin einnig út á neytendur hafi ekki fengið að skila keyptum nærfötum. Í skilmálunum kom jafnframt fram að ef fólk ætlaði að skila fötum þyrftu þau að veraí upprunalegu ásigkomulagi, ónotuð og með framleiðslu- eða verðmiða. Þar að auki þurfti að framvísa kvittun.

„Ekkert [í lögununum] mælir fyrir um og heimilar svo víðtæka takmörkun á réttinum til að falla frá samningi,” segir í úrskurðinum.

Neytendastofa krafiðst þess að Hjartadrottningin ehf. myndi fara að leiðbeiningum sínum innan tveggja vikna ella fengi verslunin á sig tuttugu þúsund króna dagsektir. En líkt og áður segir voru gerðar fullnægjandi breytingar á síðunni áður en dagsektirnar tóku gildi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×