Temu kaupin geti hæglega orðið að fíkn Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 15. ágúst 2024 11:23 Netverslanir líkt og Temu og Shein hafa komið eins og stormsveipur inn á íslenskan markað á undanförnum mánuðum. Sálfræðingur segir nýjar sölusíður líkt og Temu og Shein sem nýlega hafa rutt sér til rúms hér á landi hæglega geta orðið til þess að valda kaupfíkn. Síðurnar herji á notendur sem upplifi vellíðan við að versla sem mest á síðunum.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í Bítinu í Bylgjunni í morgun. Katrín Kristjánsdóttir sálfræðingur hjá Lífi og Sál ræddi hinar nýju sölusíður og hinn svokallaða Temu glampa í augum margra Íslendinga sem hafa verið duglegir að versla á síðunni. Undanfarnar vikur og mánuði hafa auglýsingar kínversku síðunnar farið mikinn á samfélagsmiðlum Íslendinga. Þar er hið ótrúlegasta dót auglýst, allt frá orkusteinum til skipulagshirslna og bakpoka sem rúma skó og fótbolta, svo fátt eitt sé nefnt. Þurfum ekki allt þetta dót Katrín segir síðurnar bjóða upp á allskyns hluti sem flestir vissu ekki að þeir þyrftu á að halda. Um leið og þeir sjái hlutina þá upplifi þeir hinsvegar að þeir þurfi svo sannarlega að kaupa þá. Um svokallaða gerviþörf sé að ræða. „Það er þessi blessaða hjarðhegðun hjá okkur. Við erum fá og það er auðvelt að láta orðið berast og um leið og það eru nokkrir þá eru allir að gera þetta, það eru allir að panta á netinu og það eru allir að skoða þetta.“ Sannleikurinn sé hinsvegar sá að við þurfum ekki allt þetta dót. Katrín rifjar upp sambærileg æði líkt og þegar Costco kom til landsins og þegar það var nýtt og spennandi að fara í fríhöfnina. Fáum umbun Katrín tekur fram að hún sé ekki fíknisérfræðingur. Það sé hinsvegar auðvelt að sjá fyrir sér að þetta geti auðveldlega orðið að ákveðinni fíkn hjá fólki. „Það er rosa auðvelt að sitja upp í sófa og það er ekki búið að vera neitt rosalega mikið af sólríkum dögum, margir sem hafa þurft að stytta sér stundir heima og þá er rosa auðvelt að opna eitthvað af þessum síðum og setja í körfu og svo jafnvel panta,“ segir Katrín. Hún segir hugrænu áhrifin sem ferlið hefur stóran hluta af mannlegu eðli, að upplifa það að fá umbun strax með því að versla sér á netinu. „Þetta er alveg eins fíkn og áfengisfíkn eða matarfíkn eða hvaða önnur fíkn og þetta er náttúrulega fyrir framan mann.“
Verslun Heilsa Bítið Neytendur Tengdar fréttir Vara við hættulegum og hræódýrum vörum hjá netverslunum Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) vill hvetja neytendur til að gæta varúðar við kaup á vörum frá netverslunum utan Evrópu sem auglýsa vörur á samfélagsmiðlum sem eru töluvert undir markaðsverði. 3. júní 2024 11:38 Mest lesið Temu kaupin geti hæglega orðið að fíkn Neytendur Spá áframhaldandi óbreyttum stýrivöxtum í næstu viku Viðskipti innlent „Allt að því galið“ að taka ekki þátt í séreignarsparnaði Viðskipti innlent Sprenging í sölu á sérsmíðuðum saunaklefum Samstarf Verðstríð að hefjast á matvörumarkaði Neytendur Tryggja sér 650 milljóna króna fjármögnun Viðskipti innlent Ætla að lækka verð með ungverskum tannlæknum Viðskipti innlent Tónleikastöðum fækkar: „Þetta er bara sorgleg þróun“ Viðskipti innlent Upplifunin verði eins og að fara í búð í útlöndum Viðskipti innlent „Við erum ekki að fara að vinna“ Neytendur Fleiri fréttir Temu kaupin geti hæglega orðið að fíkn Verðstríð að hefjast á matvörumarkaði Sleppur við sektir eftir auglýsingu um hundrað prósent lán Orðrómur um Appelsín ósannur Bjórinn á rúmlega tvö þúsund krónur í erfiðum rekstri Íslenskt súkkulaðistykki ódýrara í Svíþjóð en á Íslandi Tælenskt hveiti úr umferð Dæmi um fimmtíu prósenta hækkun á matvöru Rukkaður um 2800 króna aukagjald í Reynisfjöru Gapandi hissa að sjá túrista skipta á milli sín mat: „Ég sárlega vorkenndi þeim“ Horfurnar versna hjá Play sem kippir afkomuspá úr gildi „Við erum ekki að fara að vinna“ Ódýrara að velja erlenda gjaldmiðilinn í posum erlendis Áföstu tapparnir stóðust ekki gæðapróf Dýr smjörvi á Egilsstöðum vekur mikla athygli Ólöglegt bleikiefni í hveitinu Búið að afvopna neytendur Ósáttur með sætin og fær milljón endurgreidda Helmingaði kostnaðinn við matarinnkaup Í áfalli yfir dýrari dekkjum og Hlöllabát Sjá meira
Vara við hættulegum og hræódýrum vörum hjá netverslunum Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) vill hvetja neytendur til að gæta varúðar við kaup á vörum frá netverslunum utan Evrópu sem auglýsa vörur á samfélagsmiðlum sem eru töluvert undir markaðsverði. 3. júní 2024 11:38