Lewandowksi sá til þess að Börsungar byrja á sigri

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Robert Lewandowski skoraði bæði mörk Börsunga í kvöld.
Robert Lewandowski skoraði bæði mörk Börsunga í kvöld. EPA-EFE/Biel Alino

Robert Lewandowski skoraði bæði mörk Barcelona þegar liðið kom til baka og vann 2-1 sigur á Valencia í fyrstu umferð La Liga, spænsku úrvalsdeildar karla í knattspyrnu.

Það vakti athygli að İlkay Gündoğan var ekki í leikmannahóp Barcelona í kvöld. Hann er sagður vera meiddur en spænskir fjölmiðlar vilja meina að hann sé á leið frá félaginu áður en félagaskiptaglugginn lokar. Dani Olmo, nýjustu kaup Börsunga, var heldur hvergi sjáanlegur en sagan segir að félagið þurfi að selja leikmenn svo hægt sé að skrá hann í leikmannahóp þess.

Hvað leik kvöldsins varðar þá var hann nokkuð jafn framan af og undir lok fyrri hálfleiks komust heimamenn í Valencia yfir þegar Diego Lopez átti sendingu á kollinn á Hugo Duro sem skoraði með góðum skalla og staðan 1-0 í hálfleik, eða hvað?

Á fimmtu mínútu uppbótartíma fyrri hálfleiks jafnaði Lewandowski með fínni afgreiðslu af sæmilega stuttu færi. Staðan orðin 1-1 og þannig var hún í hálfleik.

Það var svo snemma í síðari hálfleik sem Cristhian Mosquera gerðist brotlegur innan vítateigs og vítaspyrna dæmd. Lewandowski fór á punktinn og lúðraði boltanum framhjá Giorgi Mamardashvili í marki Valencia.

Staðan orðin 2-1 gestunum frá Barcelona í vil og það reyndust lokatölur. Hansi Flick byrjar veru sína sem þjálfari Börsunga á sigri.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira