Neytendur

Mót­mæla sam­ráð­sum­mælum Breka og segja þau „hald­laus“

Atli Ísleifsson skrifar
Benedikt S. Benediktsson er lögfræðingur Samtaka verslunar og þjónustu. Hann tekur við stöðu framkvæmdastjóra um næstu mánaðamót. Breki Karlsson er formaður Neytendasamtakanna.
Benedikt S. Benediktsson er lögfræðingur Samtaka verslunar og þjónustu. Hann tekur við stöðu framkvæmdastjóra um næstu mánaðamót. Breki Karlsson er formaður Neytendasamtakanna. SVÞ/Vísir/Arnar

Samtök verslunar og þjónustu hafa mótmælt ummælum formanns Neytendasamtakanna um að „nokkurs konar þögult samkomulag“ hafa hlutina eins og þeir eru á dagvörumarkaði. Segja SVÞ ummæli formannsins vera „haldlaus“ og er bent á að formaðurinn hafi ekki fært nokkur rök máli sínu til stuðnings. Slíkt sé alvarlegt og feli í sér harkalega ásökun sem eigi ekki við rök að styðjast.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá SVÞ þar sem brugðist er við ummælum Breka Karlssonar, formanns Neytendasamtakanna, í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær. Þar var rætt um opnun Prís, nýrrar matvöruverslunar, og hvaða áhrif það hefði á neytendur. Breki sagðist þar fagna aukinni samkeppni og að opnun verslunarinnar ætti að draga vöruverð niður um allt land.

Hann sagði það þó líta þannig út að „verslanirnar sem haf[i] verið fyrir á markaði, hafi haft með sér nokkurs konar þögult samkomulag um að hafa þetta eins og þetta er“. Sagði hann því gott að það komi einhver nýr inn á markaðinn af miklu afli, til þess að lækka vöruverðið,“ segir Breki.

Ígildi ólöglegs samráðs

Í tilkynningunni frá SVT segir að ummæli Breka verði ekki skilin á annan hátt en að hann telji ráðandi fyrirtæki á dagvörumarkaði hafi átt með sér ígildi samráðs eða samstilltra aðgerða sem fari í bága við bannákvæði 10. grein samkeppnislaga.

„SVÞ mótmæla framangreindum ummælum formanns Neytendasamtakanna. Formaðurinn færði hvorki nokkur rök máli sínu til stuðnings né gerði tilraun til að útskýra mál sitt nánar. Ummælin eru haldlaus. Til að mynda gefa afkomutölur fyrirtækja á dagvörumarkaði hið gagnstæða til kynna.

Í huga SVÞ er alvarlegt að formaður neytendasamtaka skuli hafa látið ummælin falla. Í þeim felst nokkuð harkaleg ásökun sem SVÞ fá ekki séð að eigi við nokkur rök að styðjast.

Aukin samkeppni er af hinu góða. Fyrirsvarsmenn fyrirtækja á dagvörumarkaði hafa í viðtölum fagnað innkomu Prís á markaðinn. SVÞ fagna innkomunni sömuleiðis. Aukin verðsamkeppni kemur neytendum ekki aðeins til góða heldur getur aukin samkeppni hvatt keppinauta á dagvörumarkaði til hagræðingar og nýsköpunar og þannig aukið skilvirkni markaðarins,“ segir í tilkynningunni frá Samtökum verslunar og þjónustu.


Tengdar fréttir

Verslanir hafi haft með sér „þögult sam­komu­lag“ um verð

Formaður Neytendasamtakanna segir útlit fyrir að lágvöruverðsverslanir hér á landi hafi haft með sér þögult samkomulag um verð. Hann fagnar aukinni samkeppni með tilkomu nýrrar verslunar, sem ætti að draga vöruverð niður um allt land.

Verðlag á matvöru lækkar í fyrsta sinn frá því í mars

Verðlag á matvöru hefur lækkað, samkvæmt greiningu verðlagseftirlits ASÍ, í fyrsta sinn frá því að nýir kjarasamningar voru undirritaðir í mars. Þróunin var komin vel á leið fyrir opnun lágvöruverðsverslunarinnar Prís um helgina. Þetta kemur fram í nýrri tilkynningu frá verðlagseftirliti ASÍ.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×